amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Mánudagurinn 20. maí 2013 - 00:56
 
Frétt birtist 26. nóvember 2009 klukkan 06:39

Skipta­stjóri krefst riftunar á viðskiptum Baugs með eigin bréf

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
RetailWeek
Jón Ásgeir Jóhannesson

Skiptastjóri Baugs Group hefur krafist riftunar á kaupum Baugs á eigin bréfum í júlí á síðasta ári. Kaupin tengjast sölu Haga út úr Baugi til 1998 ehf. en Baugur notaði helming söluverðsins til að kaupa eigin bréf af helstu eigendum sínum.

Eignarhaldsfélagið 1998 ehf. keypti haga af Baugi í júlí 2008 fyrir 30 milljarða króna og voru kaupin fjármögnuð af Kaupþingi. Helmingur söluverðsins notaði Baugur til að greiða skulir í Kaupþingi og Glitni en helmingur var nýttur til að kaupa eigin bréf. Seljendur bréfanna voru eignarhaldsfélög í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Ingibjargar Pálmadóttur, eiginkonu hans og Hreins Loftssonar.

Í frétt Morgunblaðsins í dag segir að skiptastjóri Baugs telji að verðið sem greitt var fyrir bréfin á þeim tíma of hátt. Falli dómur þrotabúinu í haf er ljóst að seljendur bréfanna þurfa að greiða búinu mismuninn á kaupverðinu og raunverulegu virði þeirra. Bréfin sem Baugur keypti af eignarhaldsfélögunum voru veðsett, þ.e. á þeim hvíldu skuldir og því runnu í raun 25 milljarðar af kaupverði Haga inni í Kaupþing aftur.

Fjárfestingafélagið Gaumur, sem er í eigu Jóns Ásgeirs og fjölskyldu hans, á 82,3% í 1998 ehf., Eignarhaldsfélagið ISP, sem er í eigu Ingibjargar Pálmadóttur, á 8,9% hlut og Bague SA, sem er í Hreins Loftssonar í gegnum Austursels ehf. á 8,8%. Þessi félög eru í hlutfallslegri ábyrgð fyrir skuldum 1998 ehf. við Kaupþing, nú Arion banka. Á gengi dagsins í dag nema þær skuldir 48,5 milljörðum króna.

Losað um persónulegar skuldir

Eins og AMX greindi frá í september losuðu hluthafar Baugs um persónulegar skuldir, þegar félagið keypti eigin hlutabréf af þeim. En um leið tryggðu þeir eignarhald sitt á Högum, með því að kaupandinn var 1998 ehf. sem er í eigu sömu aðila og seldur bréfin til baugs. Hagar er langstærsta verslunarfyrirtæki landsins en innan vébanda þess eru m.a. Hagkaup, Bónus, 10-11, Útilíf og fleiri verslanir s.s. Húsasmiðjan.

Í samtali við Morgunblaðið í september sagði Jón Ásgeir að þessi háttur hafi verið viðhafður í samráði helstu kröfuhafa, sem voru Landsbanki, Kaupþing og Glitnir. Landsbankinn hafi lagt áherslu á að Baugur losaði um eignir sínar á Íslandi og yrði hreint fjárfestingarfélag á erlendri grundu. Það myndi auðvelda að fjármagna félagið og gera skuldir félagsins söluvænlegri. Þá sagði Jón Ásgeir að viðræður hafi staðið yfir á síðasta ári við erlenda fjárfesta um kaup á hlut í Baugi. Vandséð er hvernig það gat verið forsenda fyrir aðkomu erlendra fjárfesta að Baugur keypti eigin bréf af ráðandi hluthöfum í Baugi.

Riftun á sölunni til 1998

Það hefur legið fyrir í nokkurn tíma að skiptastjórar þrotabús Baugs, muni reyna að rifta sölunni á Högum til 1998 ehf. Þeir telja að ráðstöfun á helmingi kaupverðsins til að greiða skuldir tengdra aðila við gamla Kaupþing hafi falið sér mismunun kröfuhafa. Söluverð Haga hefði átt að koma öllum kröfuhöfum Baugs Group til góða.

Jón Ásgeir hefur lýst því yfir að engar forsendur séu fyrir riftun, enda hafi kaupverðið verið eðlilegt og Baugur á þeim tíma verið gjaldfært.

Tengt efni

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX