amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Sunnudagurinn 19. maí 2013 - 23:02
 
Frétt birtist 6. nóvember 2009 klukkan 16:59

Fjárhagslegri endur­skipulagningu Landic Property lokið

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Landic Property hf. hefur samið við NBI (Landsbankann), Nýja Kaupþing, Íslandsbanka, Glitni, Haf Funding og Byr um fjárhagslega endurskipulagningu íslenska fasteignafélagsins Landic Property Ísland og dótturfélaga.

Samningarnir tryggja áframhaldandi rekstargrundvöll innlends fasteignasafns Landic Property sem samanstendur af 120 fasteignum, yfir 400 þúsund fermetrum, einkum verslunar- og skrifstofuhúsnæði miðsvæðis í Reykjavík. Landic Property Ísland er stærsta fasteignafélag landsins en meðal eigna félagsins eru Kringlan og Hilton Reykjavík Nordica. Landic Property Ísland er nú í meirihlutaeigu íslenskra banka. Eignir félagsins eru um 90 milljarða króna virði. Viðar Þorkelsson hefur verið ráðinn forstjóri Landic Property Ísland og Einar Þorsteinsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri félagsins.

Starfsemi móðurfélagsins, Landic Property hf., hefur nú verið hætt og hefur stjórn þess óskað eftir heimild til nauðasamningsumleitana við lánardrottna.

Um mitt ár 2008 voru eignir Landic Property hf., að stærstum hluta fasteignir á Norðurlöndunum. Mikil hækkun skulda vegna falls íslensku krónunnar og lækkun fasteignaverðs í kjölfar efnahagshrunsins setti rekstur móðurfélagsins í uppnám og hefur félagið verið í greiðslustöðvun síðan 16. apríl 2009. Var eigið fé Landic Property þá orðið neikvætt. Fulltrúar kröfuhafa tóku sæti í stjórn félagsins og eigendur viku. Síðastliðna 12 mánuði hafa stjórnendur, í samvinnu við kröfuhafa, unnið að því að verja íslenska starfssemi félagsins og losa um erlendar eignir og veðskuldir en í því ferli hefur meðal annars verið gengið frá sölu á eignasöfnum félagins í Danmörku og Finnlandi.

Eftirstandandi óveðsettar eignir móðurfélagsins Landic Property hf. nema nú rúmlega 5 milljörðum króna, en skuldir við ótryggða kröfuhafa eru taldar nema um 120 milljörðum króna. Stjórn félagsins telur að hagsmunum kröfuhafa sé best borgið með því að kröfuhöfum verði afhentar allar eignir móðurfélagins fyrir atbeina nauðasamninga og félaginu slitið. Kröfuhafar sem fara með yfir 76% af upphæð krafna hafa lýst yfir stuðningi við umsókn um heimild til nauðasamningsumleitana sem lögð var fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í dag.

Viðar Þorkelsson, forstjóri Landic Property Ísland segir í yfirlýsingu:

„Það er vissulega ánægjulegt að tekist hefur að verja rekstur íslenska rekstrarfélagsins, enda

var það yfirlýst markmið þeirra björgunaraðgerða sem staðið hafa yfir allt þetta ár. Landic Property Ísland býr að vönduðu eignasafni og reksturinn er tryggur. Á sama tíma eru það vonbrigði að lánardrottnar og hluthafar Landic Property hf. verða fyrir jafnmiklu tjóni eins og raun ber vitni. Það er þó mitt mat að með samvinnu við kröfuhafa og samstilltu átaki starfsmanna hafi tekist að bjarga því sem bjargað varð og færi ég þessum aðilum kærar þakkir fyrir þeirra framlag við erfiðar aðstæður.“

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX