amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 21. maí 2013 - 08:36
 
Frétt birtist 19. október 2009 klukkan 11:25

Fjórtán ára í milljónaviðskiptum

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Intel
Það er mikilvægt fyrir fyrirtækin að auglýsingar á netinu birtist á réttum stað. Á því græða tveir hugmyndaríkir danskir guttar.

Tveir ungir danskir strákar hafa á aðeins fjórum mánuðum búið sér til milljónafyrirtækið onlinefactory.dk., að því er Börsen greinir frá. Það eru þeir Simon Mørch, fjórtán ára og Mattias Skovhøj, nítján ára.

Onlinefactory.dk, sem er hugmynd hins fjórtán ára Simon Mørch, sér um markaðssetningu fyrirtækja á netinu, þ.e. finnur auglýsingum fyrirtækjanna stað þar sem líklegt er að þær skili bestum árangri. Viðskiptavinir strákanna borga því aðeins að auglýsingarnar skili árangri.

Velta hins nýstofnaða fyrirtækis piltanna nam 50 þúsund dönskum krónum í júlí, eða sem svarar um 1250 þúsundum íslenskra króna. Mánuði síðar, þ.e. í ágúst, hafði veltan í Onlinefactory.dk tífaldast, var semsagt orðin hálf þrettánda milljón íslenskra króna. Frá því að strákarnir fóru af stað fyrir fjórum mánuðum hafa þeir velt 1,3 milljónum danskra króna, jafngildi 32,5 milljóna íslenskra króna.

„Þetta er fínt,“ segja tvímenningarnir en taka þó einn dag fyrir í einu. „Ég sótti um starf í unglingavinnu þegar ég varð þrettán ára en fékk ekki,“ segir Simon Mørch og bætir því við að þá hafi hann orðið að búa sér til vinnu sjálfur. „Það má ekki byrja að vinna og afla tekna fyrr en maður verður þrettán ára,“ segir Simon og ég hélt að ég gæti ekki unnið mér inn peninga á því sem ég kann,„ bætti hann við en Simon byrjaði strax níu ára gamall að búa til heimasíður.

Mattias er forstjóri

Mattias Skovhøj býr hins vegar að reynslu, ef hægt er að tala um slíkt í tilfelli nítján ára stráks. Hann var auk þess nógu gamall til þess að fá virðisaukaskattsnúmer en í Danaveldi þurfa menn að vera átján ára gamlir til þess að fá slíkt leyfi. Vegna þessa er Mattias forstjóri en Simon starfsmaður Onlinefactory.dk.

Hætti í menntaskóla

Mattias er í fullu starfi við fyrirtæki strákanna og hætti í menntaskóla vegna velgengninnar í atvinnurekstrinum. Simon fer hins vegar í skólann klukkan átta en mætir í vinnuna síðdegis, þ.e. strax eftir skólalok.

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX