
Nú seinnipartinn í dag óskuðu eigendur einkahlutafélagsins Heiðarsólar ehf. (áður Saxhóll ehf), eftir því að félagið yrði tekið til gjaldþrotaskipta, að því er fram kemur í tilkynningu.
„Helstu eignir Heiðarsólar ehf. eru fólgnar í skuldabréfum, hlutabréfum og fasteignum, en auk þess var handbært fé félagsins um áramót umtalsvert eða á fjórða milljarð króna. Starfsemi félagsins á sér langa sögu og voru eignir þess umtalsverðar fyrir tíma nýliðinnar eignabólu. Eftir bankahrun var eigið fé félagsins enn jákvætt og vonir stóðu til þess að hægt yrði bjarga rekstri þess.
Í ljósi ábyrgða sem fallið hafa á félagið og afar neikvæðra rekstrarskilyrða, sem felast ekki síst í háum vöxtum og þröngri rekstrarstöðu fyrirtækja ásamt hríðfallandi virði verðbréfa, er því miður ekki hjá því komist að eigendur félagsins axli ábyrgð og óski eftir gjaldþrotaskiptum á félaginu.
Engar skuldir eru í Heiðarsól ehf. aðrar en við viðskiptabanka Heiðarsólar. Megin ábyrgðir og skuldir eru við Nýja Landsbankann hf. og er ósk eigenda félagsins um gjaldþrotaskiptin gerð í fullu samráði við bankann og stærstu kröfuhafa.
Það er nú í höndum skiptastjóra að ráðstafa eignum félagsins í þágu kröfuhafa,“ segir enn fremur í tilkynningunni.
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.