amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 22. maí 2013 - 21:17
 
Frétt birtist 15. október 2009 klukkan 16:39

Ekki hægt að upplýsa um eignar­hlut erlendra banka í Íslandsbanka

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Íslandsbanki

Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, segir að ekki sé hægt að upplýsa um eignarhlut erlendra banka í Íslandsbanka. Ljóst er hins vegar að mikill meirihluti hlutafjár Íslandsbanka verður í eigu erlendra aðila. Þetta kemur fram í svörum Árna Tómassonar við spurningum AMX.

Fyrr í dag var tilkynnt um að skilanefnd Glitnis (kröfuhafar) myndu eignast 95% hlutafjár í Íslandsbanka. Ríkið mun eiga 5% í bankanum. Meðal eigenda verða japanski bankinn Sumitomo Mitsui og breski bankinn Royal Bank of Scotland. Þá eru ljóst að þýsku bankarnir HSH Nordbank og DekaBank verða einnig hluthafar í Íslandsbanka. Eigendur skuldabréfa á Glitni verða hluthafar í hinum nýja banka en hverjir þeir eru kemur ekki í ljós fyrr en frestur til að lýsa kröfum í þrotabú Glitnis rennur út 26. nóvember næstkomandi.

AMX sendi Árna Tómassyni nokkrar spurningar vegna þess:

Spurning

Glitnir eignast 95% í Íslandsbanka. Er vitað hvernig þessi eignarhluti skiptist á milli innlendra og erlendra aðila?

Svar:

Glitnir og skilanefndin mun fara með umsýslu á eignarhlut í ÍSB fyrir hönd kröfuhafa eins og um allar aðrar eignir Glitnis. Stofnað verður sérstakt eignarhaldsfélag í þessu skyni. Mikill meirihluti kröfuhafa (amk fjárhæðir) er í eigu erlendra aðila.

Spurning

Það liggur fyrir hver eignarhlutur Sumitomo Mitsui, Royal Bank of Scotland, HSH Nordbank og DekaBank er miðað við núverandi stöðu og þá að því gefnu að þeir hafi ekki keypt/eða selt skuldabréf á bankann. Hver er áætlaður eignarhlutur þessara banka, og þá eftir hverjum og einum?

Svar

Það liggur ekki fyrir fyrr en í fyrsta lagi eftir 26. nóv. nk hverjir eru kröfuhafar Glitnis. Við höfum ekki upplýsingar um viðskipti með skuldabréf Glitnis og viljum því ekki tjá okkur um þetta frekar.

Spurning

Hvenær verður skipað í stjórn Íslandsbanka?

Svar

Næst liggur fyrir að finna stjórnarmenn, skilanefnd gerir tilnefningar í samráði við óformlegt kröfuhafaráð og ráðgjafa. Tilnefningin er háð samþykki FME. Stefnt er að því að ljúka tilnefningu innan nokkurra vikna.

Spurning

Hvernig verður staðið að ákvörðun um skipan manna í stjórn bankans?

Svar

Hluti verður skipaður reyndum erlendum banka- og fjármálamönnum og hluti innlendur.

Tengt efni

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX