
„Fyrir mér er ekki vafi á því að Jón Ásgeir hefur á umliðnum árum gert meira fyrir íslenskt samfélag en aðrir samtíðarmenn hans og þótt aftar í söguna væri farið. Ég læt það þó liggja á milli hluta að reyna að finna honum verðugan stað í sögu merkra Íslendinga á liðinni öld og þessari, en í mínum huga er það fullljóst að þar mun sagan skipa honum í fremstu röð. Jón Ásgeir var og er alfa og omega þeirrar útrásar og uppbyggingar sem einkennt hefur íslenskt viðskiptalíf á umliðnum árum. Hann hefur verið leiðandi í útrás íslenskra fyrirtækja sem hefur haft gríðarleg áhrif á lífskjör og sjálfstraust okkar litlu þjóðar. Um það get ég sjálfur vottað. Án Jóns Ásgeirs og frumkvöðlastarfs hans, hefði ég aldrei lagt af stað til annarra landa í leit að viðskiptatækifærum. Án Jóns Ásgeirs væri því fjórða stærsta lággjaldaflugfélag Evrópu ekki í eigu Íslendinga í dag. Á fáum árum hafa Íslendingar orðið gjaldgengir í alþjóðlegum viðskiptum og er það einkum og sér í lagi Jóni Ásgeiri að þakka.“
- Pálmi Haraldsson, oft kenndur við Fons, í blaðagrein í Morgunblaðinu 5. júlí 2005 í tilefni af því að ákærur voru gefnar út í svokölluðu Baugsmáli