
„Sem Reykvíkingur og íbúi í Reykjavík að þá auðvitað horfi ég á þá staðreynd að þarna er Orkuveitan hugsanlega að fara í ákveðinn áhætturekstur en ég sé það líka að hún er að leggja þarna inn sex, sjö milljarða en eignin sem hún fær út úr þessu eru, ja, næstum því þrefalt meiri þannig að það er nú góður samningur fyrir okkur í Reykjavík. Og svo gleðst ég yfir því að það er yfirlýsing um það að þetta fyrirtæki að það fari á markað innan tíðar og þar með verður væntanlega undið ofan af þessu sem að menn kannski eru að gagnrýna sem er ákveðin áhætta sem að tekin er.“
- Össur Skarphéðinsson, þáverandi iðnaðarráðherra fagnar samruna útrásararms Orkuveitunnar og Geysis Green Energy sem var meðal annar í eigu FL Group í stjórnvarpsfréttum 4. október 2007