amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 9. febrúar 2012 - 01:45
 
Tilvitnun birtist 10. mars 2010 klukkan 13:36

Ögmundur Jónasson: Vík milli mín og Steingríms J.

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

„Við Steingrímur höfum ekki talað eins mikið saman upp á síðkastið og við höfum lengst af gert. Ekki gleyma því að við erum pólitískir samferðamenn og félagar til langs tíma og höfum átt mjög náið samstarf í gegnum tíðina. Nú hefur verið vík milli vina. Yfir þá vík er hins vegar hægt að róa og ég hef trú á því að menn séu í þann veginn að setjast undir árar...

Einhvern tímann hefði manni þótt skrítið að það skyldi verða blaðafrétt að við Steingrímur J. Sigfússon settumst niður til að spjalla. Auðvitað var það engin frétt. Eigum við ekki bara að segja að þetta sé svolítið hlægilegt. Og þannig verður það vonandi þegar fram líða stundir og tímabundnar deilur að baki. Þá munum við félagarnir í VG öll að nýju geta hlegið saman. En seint held ég að við hlæjum að því sem hent hefur á undangengnum mánuðum. Það er nefnilega ekkert gamanmál þegar vinir og félagar deila.“

- Ögmundur Jónasson, þingmaður VG í viðtali við Smuguna 10. mars 2010 aðspurður um hvort hann og Steingrímur J. Sigfússon væru að ræða saman

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX