
„Kjararáð hefur fjallað um fréttalestur útvarpsstjóra og er niðurstaða ráðsins að kjósi útvarpsstjóri að lesa fréttir sé það hluti af aðalstarfi sem ekki beri að launa sérstaklega enda er fréttaflutningur eitt af lögbundnum hlutverkum Ríkisútvarpsins ohf. og launaákvörðun kjararáðs felur í sér laun fyrir öll störf á vegum þess ...
Lesi útvarpsstjóri fréttir telst það hluti af aðalstarfi og launast ekki sérstaklega.“
- Úrskurður Kjararáðs 23. febrúar 2010 um launakjör Páls Magnússonar útvarpsstjóra, en Páll hafði haldið því fram að fréttalestur teldist ekki til starfa útvarpsstjóra og því ætti að greiða sérstaklega fyrir hann.