amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 9. febrúar 2012 - 01:35
 
Tilvitnun birtist 27. janúar 2010 klukkan 09:58

Jóhanna Sigurðar­dóttir: Ekki kostur að fresta Icesave um vikur eða mánuði

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

„Það er sem sagt mikið hættuspil að hafna Icesave-frumvarpinu. Það er sömuleiðis ekki kostur að draga samþykkt þess og fresta málinu enn um vikur eða mánuði. Slíkt er einnig hættuspil. Líklega má telja miðað við fyrri reynslu að önnur endurskoðun efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins mundi frestast um óákveðinn tíma, þar með mundi full afgreiðsla lána frá sjóðnum tefjast og hið sama mundi sennilega einnig gilda um lánveitingar Norðurlanda. Afleiðingin yrði sú að ekki yrði hægt að styrkja gjaldeyrisforðann, sem er nauðsynleg forsenda afnáms gjaldeyrishafta. Slík töf mundi einnig draga úr tiltrú á efnahagsstefnu stjórnvalda bæði innan lands og utan og lánshæfismat ríkissjóðs mundi að öllum líkindum lækka.“

- Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í umræðum á Alþingi um Icesave-frumvarpið 30. desember 2009

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX