amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 9. febrúar 2012 - 01:45
 
Tilvitnun birtist 6. janúar 2010 klukkan 10:48

Össur Skarphéðinsson: Þetta er æðsta form lýðræðis.

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

„Samkvæmt stjórnarskránni er fjölmiðlamálið nú í þeirri stöðu að þjóðin hefur rétt til að taka sér hlutverk æðsta dómara um framtíð þessa máls. Þetta er æðsta form lýðræðisins. Almenningur úrskurðar sjálfur án nokkurra milliliða. Þess vegna er það skoðun okkar að núna eigi þjóðin varinn rétt til að stíga næsta skref í þessu máli. Það er ekki ríkisstjórnar eða Alþingis. Það er ekki stjórnmálamanna og það er fráleitt að Alþingi ætli sér að hafa áhrif á það hvort hinn raunverulegi þjóðarvilji ráði niðurstöðunni. Það er réttur þjóðarinnar, sem er varinn í stjórnarskránni, að skera úr um það hvort þessi lög eigi að hafa gildi til frambúðar eða falla niður. Þess vegna tel ég að Alþingi geti ekki leyft sér að samþykkja lög sem skerða þennan rétt. Um það verður aldrei friður og stjórnarandstaðan mun aldrei fallast á það.“

- Össur Skarphéðinsson í ræðu á Alþingi 7. júlí 2004 þegar til umræðu var frumvarp þáv. ríkisstjórnar um að fella fjölmiðlalögin úr gildi, eftir að Ólafur Ragnar hafði neitað að undirrita þau.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX