amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 9. febrúar 2012 - 01:40
 
Tilvitnun birtist 30. desember 2009 klukkan 16:10

Össur Skarphéðinsson: Sýnir þeim sem við eigum í höggi við að ólga er meðal þjóðar­innar

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

„Ég hef sömuleiðis sagt það áður að ég tel að það skipti máli að félagasamtök eins og Indefence hafa beitt sér í þessu máli og á síðustu dögum, fyrir utan það sem er að gerast hér, hugsa ég að ekkert hafi skipt jafnmiklu máli og útifundurinn sem Indefence-hópurinn stóð fyrir á sínum tíma fyrir utan Alþingishúsið vegna þess að það sýnir þeim sem við eigum í höggi við að það er mikil ólga meðal íslensku þjóðarinnar út af þessu máli. Þetta er vont mál, það hefur enginn dregið dul á það. Ég vil bara segja það hér til að hafa sagt það, (Gripið fram í.) ég tel að stjórnarandstaðan hafi sýnt ábyrgð og málefnalega festu í málflutningi sínum þótt ég sé ekki sammála öllu.“

- Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra í umræðum á Alþingi 27. ágúst 2009 um fyrra Icesave-frumvarp ríkisstjórnarinnar

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX