amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 9. febrúar 2012 - 01:39
 
Tilvitnun birtist 9. desember 2009 klukkan 13:01

Jóhanna: Hvaða þjóðþing sem er teldi sér fært að samþykkja slík öryggisákvæði

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

„Virðulegi forseti. Ég hef áður sagt og ítrekað að þessir fyrirvarar eru í stórum dráttum þess eðlis að hvert þjóðþing mundi telja sér fært að setja sambærileg öryggisákvæði til að leggja áherslu á að ekki megi skerða fullveldi þjóðar sinnar og tiltekna grundvallarhagsmuni eins og framtíðarefnahag þjóðarinnar. Þess vegna leyfi ég mér að vera vongóð um að Bretar og Hollendingar sýni málinu í þeim búningi sem það fer nú fulla sanngirni og skilning. Það er það sem við förum fram á við þessar þjóðir nú í kjölfar samþykktar þessara laga.

Það er alþekkt úr sögu evrópskrar samvinnu að þjóðþing eða dómstólar setji fyrirvara þegar verið er að afgreiða mikilvæga milliríkjasamninga. Eins og áður segir er verkefnið nú að sannfæra viðsemjendur okkar um að við séum ekki að hlaupast undan ábyrgð heldur þvert á móti að axla ábyrgð en með þeim hætti að við fáum örugglega undir henni risið.“

- Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á Alþingi 28. ágúst 2009 þegar fyrra frumvarp um ríkisábyrgð á Icesave var afgreitt sem lög

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX