
„Um leið getum við sópað burt öllu ruglinu, öllu því sem að fór úrskeiðis, ekki bara hinum feysknu bönkum og stjórnendum þeirra, heldur einnig eignarhaldsfélögunum og auðhringjunum sem að tröllriðu hér öllu. Það er eitt af því sem að við munum losna við þegar upp er staðið og munum sjálfsagt verða afskaplega fegin þegar við sjáum að það er hægt að reka hér hagkerfi sem skilar betri lífskjörum en áður, með einfaldara eignarhaldi, með smærri fyrirtækjum, sjálfstæðari fyrirtækjum, dreifðari eignaraðild og réttlátari skiptingu arðsins sem fyrirtækin skapa.“
- Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra í ræðu á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar 22. nóvember 2009