
„Afskráning FL Group mun veita stjórnendum félagsins tækifæri til að leggja meiri áherslu á langtímamarkmið og minnkar einnig áhrif vegna skammtímamarkmiða sem tengjast hlutabréfamarkaði. Sú staðreynd að um 83% hluthafa félagsins hafa þegar ákveðið að halda hlut sínum í FL Group að afskráningu lokinni sýnir vel þá trú sem þessir aðilar hafa á FL Group, stefnu stjórnar og framkvæmdastjórnar. Þeir hluthafar sem kjósa fremur að eiga hlut í skráðu félagi hafa möguleika á að fjárfesta í Glitni, einni af kjarnafjárfestingu FL Group, sem við getum óhikað mælt með.“
- Jón Ásgeir Jóhannesson, þáverandi stjórnarformaður FL Group í yfirlýsingu í maí 2008 til Kauphallarinnar um afskráningu félagsins