
„Að mínu mati á að kanna nú þegar allar leiðir til að sækja Gordon Brown forsætisráðherra og bresku ríkisstjórnina til saka að alþjóðalögum og heimta bætur. Ekkert hefur komið fram sem sannar það að Kaupþing banki hafi gerst sekur um brot á breskum lögum né heldur að hann gæti ekki staðið við skuldbindingar þar í landi ef hann fengi að vera í friði. Heldur naut starfsemin einmitt vinsælda og trausts. Kannski er það einmitt sú staðreynd sem fór fyrir brjóstið á breskum stjórnvöldum og fyllti þá öfund. Hjartað í Brown var ekki stærra en svo...
Það á ekki að sýna Bretum neina pólitíska linkind í þessu máli. Það á að vekja athygli alþjóðasamfélagsins á yfirgangi þeirra og lögbrotum gangvart Íslendingum .“
- Jón Bjarnason, landbúnaðar og sjávarútvegsráðherra á bloggi sínu 11. október 2008, en þá var Jón óbreyttur þingmaður í stjórnarandstöðu.