Jóhanna Sigurðardóttir: Allt verði upp á borðinu
2. feb „Ég hef sem forsætisráðherra skrifað skilanefndum bankanna bréf þar sem ég krefst þess að fá svör við því hvort farið sé eftir skráðum reglum og gegnsæju ferli í ákvörðunum um það hvaða fyrirtækjum, sem mörg eru tæknilega gjaldþrota, verði leyft að ganga í endurnýjun lífdaga. Ríkisstjórnin sættir sig ekki við annað en þarna sé allt uppi á borðinu og að jafnræði sé tryggt.“
Steingrímur J: Treystum við ekki þjóðinni
21. feb „Treystum við ekki þjóðinni? Ekki getur það verið vandinn að nokkrum manni í þessum sal, þingræðissinna, detti í hug að þjóðin sé ekki fullfær um að meta þetta mál sjálf og kjósa um það samhliða því að hún kýs sér þingmenn. Stundum heyrist að vísu einstaka hjáróma rödd um að sum mál séu svo flókin að þau henti ekki í þjóðaratkvæði. Það er einhver allra ömurlegasti málflutningur sem ég heyri.“
Undarlegur hræðsluáróður gegn erlendum lánum
21. jan "Mér finnst hræðsluáróður íslensku bankanna um að Íslendingar verði að hafa tekjur í erlendum myntum undarlegur því öll höfum við tekjur í íslenskum krónum sem fylgja erlendum myntum þegar til lengri tíma er litið.
Eykon: Örfáir auðmenn ráði ekki öllu
3. jan „En mergurinn málsins er sá, að íslenzka þjóðin vill ekki, að örfáir auðmenn ráði yfir öllum hennar atvinnurekstri.“
Gunnar Smári: Bankarnir fóru út í heim og gerðu okkur stolt
26. nóv "Rúmu korteri eftir að þeir [bankarnir sluppu frá ríkinu fóru þeir að veita almennilega þjónustu, hærri vexti handa þeim sem áttu pening og lægri til þeirra sem skorti hann en ríkinu hafði tekist á þeirri öld sem það var að vasast í bankarekstri.
27. okt „Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar er óskabarn eigenda eins stærsta auðfélags landsins, svo sem berlega kom fram í sérblaði DV sem gefið var út í kosningavikunni Framsóknarflokknum til ófrægingar. Ef þessi nýja ríkisstjórn kemst á koppinn verður hún trúlega kennd við foreldri sitt og nefnd Baugsstjórnin.“ "
24. sep „Fyrir um það bil ári hitti ég háttsettan Baugsmann sem gumaði af því að hann gæti notað sína miðla eins og hann vildi. Það var sorgleg uppgötvun og ég hugsaði með mér: Fjandinn hafði það, Davíð Oddsson hafði rétt fyrir sér. Þetta voru og eru Baugsmiðlar.“
Breiðavíkurdrengir hins alþjóðlega fjármálakerfis
20. sep "Við eigum að axla byrgðar hins alþjóðlega fjármálakerfis og verða Breiðavíkurdrengir þess. Í rauninni er þessi vandi ekki vandi þjóðarinnar heldur eigenda þessa einkavædda banka sem rakaði til sín fé í gegnum ICESAVE reikningana á sínum tíma.
Jóhanna Sigurðardóttir: Stöðva verður okurvexti
10. sep "Stöðva verður það okur sem nú eru á dráttarvöxtum og yfirdráttarlánum.
Ætlum að borga allar okkar skuldir
2. sep Við ætlum okkur að ganga til samninga við bankann með það að leiðarljósi, að við ætlumst ekki til að hann afskrifi krónu. Við ætlum að borga allar okkar skuldir á ákveðinn hátt með nýju fjármagni.
9. ágú „En að halda því fram að nú eigi að hækka skatta, kannski á næstu mánuðum eða svo, er fjarstæða. Það er fjarstæða að halda því fram. Vel má vera að í áætlununum sem við þurfum að gera til næstu fjögurra ára þurfi kannski að fara bæði í niðurskurð og skattahækkanir.“
Davíð Oddsson 2003: Bankar á hálum ís
14. júl „Og reyndar er maður mjög hugsandi orðinn yfir því, svo maður komi því nú að hér, með hvaða hætti íslensku bankarnir, allir stærstu bankarnir, eru farnir að haga sér með afskiptum sínum og inngripum í íslenskt atvinnulíf. Þar eru menn komnir út á mjög hála braut að mínu viti.“
Pálmi í Fons: Jón Ásgeir hefur gert meira fyrir íslenskt samfélag en aðrir
5. maí "Fyrir mér er ekki vafi á því að Jón Ásgeir hefur á umliðnum árum gert meira fyrir íslenskt samfélag en aðrir samtíðarmenn hans og þótt aftar í söguna væri farið. Ég læt það þó liggja á milli hluta að reyna að finna honum verðugan stað í sögu merkra Íslendinga á liðinni öld og þessari, en í mínum huga er það fullljóst að þar mun sagan skipa honum í fremstu röð.
Össur fagnaði samruna REI og Geysir Green Energy
22. apr "Sem Reykvíkingur og íbúi í Reykjavík að þá auðvitað horfi ég á þá staðreynd að þarna er Orkuveitan hugsanlega að fara í ákveðinn áhætturekstur en ég sé það líka að hún er að leggja þarna inn sex, sjö milljarða en eignin sem hún fær út úr þessu eru, ja, næstum því þrefalt meiri þannig að það er nú góður samningur fyrir okkur í Reykjavík.
Ögmundur Jónasson: Vík milli mín og Steingríms J.
10. mar "Við Steingrímur höfum ekki talað eins mikið saman upp á síðkastið og við höfum lengst af gert. Ekki gleyma því að við erum pólitískir samferðamenn og félagar til langs tíma og höfum átt mjög náið samstarf í gegnum tíðina. Nú hefur verið vík milli vina.
Sigmundur Ernir: Annað hvort víkur forsetinn eða ríkisstjórnin
8. mar "Vitaskuld förum við í þjóðaratkvæðagreiðslu að ráði forsetans. Verði Icesave-lögin samþykkt í henni, er forsetanum varla sætt lengur. Verði Icesave-lögunum hafnað, er ríkisstjórninni varla sætt lengur. Æ fleiri viðbrögð fólks allt í kringum mig telja mér trú um að forsetinn sé tæpari en stjórnin. Nú er enda spurt í lokin; endurreisn eða einangrun?
Jóhann Hauksson: Þekki aðeins einn sem mætir á kjörstað
4. mar „Ég get sagt Vigdísi [Hauksdóttur að ég þekki aðeins einn sem ætlar á kjörstað. Öðrum þykir ástæðulaust að láta forsetann, Vigdísi og Indefence hafa sig að fífli. Sannleikurinn er sá að þessi fyrsta þjóðaratkvæðagreiðsla í sögu lýðveldisins stefnir í að verða einhver mesta niðurlæging forsetans sem um getur.“
Þráinn Bertelsson: Í öllum þjóðfélögum eru fábjánar
2. mar „Það er eðlilegt að í öllum þjóðfélögum eru fábjánar og þeir eiga rétt á skoðunum sínum eins og aðrir. Hins vegar finnst mér að fjölmiðlar eigi ekki að gera skoðunum fábjána jafn hátt undir höfði eins og úthugsuðum skoðunum hjá greindu fólki.“
Kjararáð: Lesi útvarpsstjóri fréttir telst það hluti af aðalstarfi
1. mar "Kjararáð hefur fjallað um fréttalestur útvarpsstjóra og er niðurstaða ráðsins að kjósi útvarpsstjóri að lesa fréttir sé það hluti af aðalstarfi sem ekki beri að launa sérstaklega enda er fréttaflutningur eitt af lögbundnum hlutverkum Ríkisútvarpsins ohf.
Jóhanna Sigurðardóttir: Samræmd meðferð á skuldum fyrirtækja nauðsynleg
25. feb „Þar verður þess gætt að um enn meira gegnsæi verði að ræða, vegna þess að það er mjög mikilvægt í þessu ferli öllu að það sé gegnsæi ríkjandi og það ríki ákveðinn trúnaður um það að það sé samræmd meðferð á fyrirtækjunum innan bankakerfisins.“
Jóhannes Jónsson: Mér er alveg sama
24. feb „Mér er alveg sama hvað kemur út úr þessari skoðanakönnun.“
23. feb „Ég held, að Hreinn Loftsson sé að krukka í ritstjórn DV og taka fram fyrir hendur ritstjóranna. Á þeirri forsendu, að lán til blaðsins séu brýnni en pirrandi fréttir. Ég veit líka, að hann hefur haft afskipti af skoðunum í blaðinu og á vef þess. Nú hefur ritskoðunarstefnan hefnt síns.“
Teknir úr umferð með vísan í almannavarnir
22. feb „Þá er mér spurn af hverju menn eins og Jón Ásgeir, Hreinn Loftsson og Jóhannes Jónsson í Bónus eru ekki teknir úr umferð með með tilvísan í lög um almannavarnir. “
Jóhannes Jónsson: Við borgum allar okkar skuldir
12. feb „Við ætlum okkur að ganga til samninga við bankann með það að leiðarljósi, að við ætlumst ekki til að hann afskrifi krónu. Við ætlum að borga allar okkar skuldir á ákveðinn hátt með nýju fjármagni. Það tekur náttúrulegan einhvern tíma að borga það niður en við teljum okkur hafa fullan grundvöll fyrir því að ná því fram.“
Jóhanna Sigurðardóttir: Ekki kostur að fresta Icesave um vikur eða mánuði
27. jan "Það er sem sagt mikið hættuspil að hafna Icesave-frumvarpinu. Það er sömuleiðis ekki kostur að draga samþykkt þess og fresta málinu enn um vikur eða mánuði. Slíkt er einnig hættuspil.
Össur Skarphéðinsson: Þetta er æðsta form lýðræðis.
6. jan "Samkvæmt stjórnarskránni er fjölmiðlamálið nú í þeirri stöðu að þjóðin hefur rétt til að taka sér hlutverk æðsta dómara um framtíð þessa máls. Þetta er æðsta form lýðræðisins. Almenningur úrskurðar sjálfur án nokkurra milliliða. Þess vegna er það skoðun okkar að núna eigi þjóðin varinn rétt til að stíga næsta skref í þessu máli. Það er ekki ríkisstjórnar eða Alþingis.
Steingrímur J: Þjóðin ákveði með lýðræðislegum hætti í almennum atkvæðagreiðslum mikilvæg mál
4. jan "Þrátt fyrir þingræðisskipulag okkar og þrátt fyrir mikilvægi þessarar stofnunar hér sem mér þykir vænt um og hef eytt miklum tíma á hennar vegum, stórum hluta ævi minnar, á ég í engum vandræðum með að þjóðin taki til sín og ákveði með lýðræðislegum hætti í almennum atkvæðagreiðslum mikilvæg mál eða að þjóðin taki í sínar eigin hendur að semja sér stjórnarskrá.
Össur Skarphéðinsson: Sýnir þeim sem við eigum í höggi við að ólga er meðal þjóðarinnar
30. des "Ég hef sömuleiðis sagt það áður að ég tel að það skipti máli að félagasamtök eins og Indefence hafa beitt sér í þessu máli og á síðustu dögum, fyrir utan það sem er að gerast hér, hugsa ég að ekkert hafi skipt jafnmiklu máli og útifundurinn sem Indefence-hópurinn stóð fyrir á sínum tíma fyrir utan ...
Eigandi Williams-liðsins: Þegar viðskipti eru gerð við Jón er rætt við hugmyndafræðinginn sjálfan
20. des "Mín viðskipti eru oftast við stór fjölþjóðleg fyrirtæki þar sem margir sérfræðingar koma að og velta hlutunum fyrir sér fram og til baka áður en komist er að niðurstöðu. Þegar viðskipti eru gerð við Jón er rætt við hugmyndafræðinginn sjálfan sem er með heildarmyndina í kollinum og veit hvert hann stefnir.
Jónas Kristjánsson um DV: Ritskoðun er dýrkeypt
14. des " Ég held, að Hreinn Loftsson sé að krukka í ritstjórn DV og taka fram fyrir hendur ritstjóranna. Á þeirri forsendu, að lán til blaðsins séu brýnni en pirrandi fréttir. Ég veit líka, að hann hefur haft afskipti af skoðunum í blaðinu og á vef þess. Nú hefur ritskoðunarstefnan hefnt síns.
Jóhanna Sigurðardóttir: Krafan um þjóðaratkvæði brýnni þegar stjórnarhættir minna á einræðisherra
10. des „Það hlýtur að vera krafa fólksins að Alþingi samþykki hið fyrsta að færa fólkinu þau mannréttindi að það geti óskað eftir þjóðaratkvæðagreiðslu. Þessi krafa verður enn brýnni, þegar stjórnarhættir á Íslandi minna orðið meira á tilskipanir einræðisherra en lýðræði.“
Jóhanna: Hvaða þjóðþing sem er teldi sér fært að samþykkja slík öryggisákvæði
9. des "Virðulegi forseti. Ég hef áður sagt og ítrekað að þessir fyrirvarar eru í stórum dráttum þess eðlis að hvert þjóðþing mundi telja sér fært að setja sambærileg öryggisákvæði til að leggja áherslu á að ekki megi skerða fullveldi þjóðar sinnar og tiltekna grundvallarhagsmuni eins og framtíðarefnahag þjóðarinnar.
Steingrímur J.: Á ekki í vandræðum með að þjóðin greiði atkvæði um mikilvæg mál
6. des "Þrátt fyrir þingræðisskipulag okkar og þrátt fyrir mikilvægi þessarar stofnunar hér sem mér þykir vænt um og hef eytt miklum tíma á hennar vegum, stórum hluta ævi minnar, á ég í engum vandræðum með að þjóðin taki til sín og ákveði með lýðræðislegum hætti í almennum atkvæðagreiðslum mikilvæg mál eða að þjóðin taki í sínar eigin hendur að semja sér stjórnarskrá.
Steingrímur J. Sigfússon: Ágengt framkvæmdavald færir sig stöðugt upp á skaftið
1. des "Ég hef áhyggjur af stöðu Alþingis. Í samskiptum þess við ágengt framkvæmdarvald sem hefur sífellt verið að færa sig upp á skaftið hin síðari ár og lítur í æ ríkari mæli á Alþingi sem hreina afgreiðslustofnun, sem raðafgreiðslustofnun, sem færiband fyrir mál sín hér í gegn, oftar en ekki með flýtimeðferð.
Gylfi Magnússon: Getum sópað öllu ruglinu í burtu
30. nóv "Um leið getum við sópað burt öllu ruglinu, öllu því sem að fór úrskeiðis, ekki bara hinum feysknu bönkum og stjórnendum þeirra, heldur einnig eignarhaldsfélögunum og auðhringjunum sem að tröllriðu hér öllu.
Gengið fljótt og vel að Jóni og Gunnu
16. nóv „Og það hefur verið upplýst að nýju bankarnir haldi áfram háttum gömlu bankanna og láti menn sem skulda yfir þúsund milljarða í bankakerfinu ekki í gjaldþrot, en gangi fljótt og vel að Jóni og Gunnu, sem eru þó nú orðin eigendur bankanna á ný.“
Jón Ásgeir: Stærsta bankarán sögunnar
6. nóv „Þetta er stærsta bankarán Íslandssögunnar og augljóslega hluti af stærri átökum sem hafa ekki farið fram hjá neinum. Nú hafa menn náð ákveðnum hefndum og hljóta að vera ánægðir.“
Jón Bjarnason: Enga pólitíska lindkind gagnvart Bretum
6. nóv „Það á ekki að sýna Bretum neina pólitíska linkind í þessu máli. Það á að vekja athygli alþjóðasamfélagsins á yfirgangi þeirra og lögbrotum gangvart Íslendingum.“
Össur Skarphéðinsson: Skipta upp einokunarrisum á matvörumarkaði
4. nóv "Stóru keðjurnar hafa í skjóli einokunar keyrt upp matarverð.