amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - 09:55
 
Frétt birtist 18. september 2009 klukkan 18:10

InDefence: Enn leyna stjórnvöld gögnum um Icesave málið

Þjóðin hefur rétt á að sjá viðbrögð Breta og Hollendinga við fyrirvörum Alþingis

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Landsbanki
InDefence hópurinn krefst þess að öll gögn um viðbrögð Breta og Hollendinga við fyrirvörum Alþingis við ríkisábyrgð á Icesave samningunum verði birt tafarlaust og án undanbragða.

Enn á ný leyna stjórnvöld gögnum um Icesave málið, segir í yfirlýsingu InDefence hópsins sem segir að þjóðin hafi rétt á að sjá viðbrögð Breta og Hollendinga við fyrirvörum Alþingis.

Yfirlýsingin fer hér á eftir:

„Ríkisstjórnin tilkynnti í gær, þann 17. september 2009, að viðbrögð hefðu borist frá Bretum og Hollendingum um þá fyrirvara sem Alþingi gerði við ábyrgð á Icesave skuldbindingunni. Viðbrögðin eru sögð vera óformleg og eru bundin leynd. Rök fjármálaráðherra fyrir leynd eru fjarstæðukennd, þ.e.a.s. að hún sé vegna þess að ef “þessar hugmyndir eru ekki grundvöllur frekari vinnu þá hverfi þær og hafa aldrei verið til„. InDefence hópurinn lýsir bæði furðu og áhyggjum yfir því að íslensk stjórnvöld geri sig aftur sek um að sveipa viðræður um Icesave málið við Breta og Hollendinga leyndarhjúpi eftir það sem undan er gengið.

Það skiptir engu máli hvort íslensk, bresk eða hollensk stjórnvöld skilgreini þessi viðbrögð sem óformleg. Ef þau eru rædd í íslenskum þingnefndum eru þau ekki bara orðin formleg, heldur varða þau beinlínis við þjóðarhag. Þjóðin á skýlausan rétt á að sjá öll viðbrögð Breta og Hollendinga við fyrirvörum Alþingis. Íslensk stjórnvöld hafa ítrekað gerst sek um að leyna þjóðinni mikilvægum upplýsingum um Icesave málið. Skemmst er að minnast þess að ekki einu sinni alþingismenn áttu að fá að sjá Icesave samningana á sínum tíma vegna trúnaðar um efni þeirra. Þá þjónaði leyndin hagsmunum Breta og Hollendinga, enda gjörbreyttust samningarnir Íslendingum í hag í meðförum Alþingis með setningu fyrirvaranna. Hagsmunum hverra þjónar leyndin nú? Ekki íslensku þjóðarinnar, svo er víst.

Því miður glötuðu íslensk stjórnvöld stórum hluta af trausti þjóðarinnar vegna framgöngu þeirra í Icesave málinu. Þetta traust þurfa þau að vinna aftur með góðum og gegnsæjum vinnubrögðum og með því að hafa þjóðina með í ráðum og birta ÖLL gögn vegna Icesave málsins. Feluleikur með gögn elur eingöngu á tortryggni.

InDefence hópurinn krefst þess að öll gögn um viðbrögð Breta og Hollendinga við fyrirvörum Alþingis við ríkisábyrgð á Icesave samningunum verði birt tafarlaust og án undanbragða, til að fullt gagnsæi ríki milli stjórnvalda og þjóðarinnar.“

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX