Minna en helmingur segist styðja ríkisstjórnina

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig tæpum 8% frá síðustu kosningum og mælist nú stærsti stjórnmálaflokkurinn á þingi, en 31,6% segjast myndu kjósa flokkinn væri gengið til kosninga í dag, að því er fram kemur í nýrri skoðanakönnum MMR, Markaðs- og miðlarannsókna.
„Fylgi Samfylkingarinnar dalar aftur á móti nokkur og mælist nú 24,1% en var 29,8% við síðustu kosningar. Fylgi Vinstri grænna mælist 19,8, fylgi Framsóknarflokksins mælist 16,6% og Borgarahreyfingin mælist með 3,1% fylgi. 4,8% segjast myndu kjósa aðra flokka.
Spurt var: Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú líklegast kjósa? Samtals voru 64,8% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (18,3%), myndu skila auðu (9,6%), myndu ekki kjósa (2,5%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,9%).
Stuðningur við ríkisstjórnina mælist nú 43,9% sem er viðsnúningur frá því í apríl 2009 (mánuðinum fyrir síðustu Alþingiskosningar) þegar 51,5% sögðust styðja þáverandi ríkisstjórn sömu flokka og nú sitja í ríkisstjórn. Andstaða við ríkistjórnina mælist nú svipuð (56,1%) og mældist við ríkisstjórn Geirs H. Haarde í október strax eftir bankahrun (54,8%).
Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? Samtals tóku 79,7% afstöðu til spurningarinnar.
Úrtak: Einstaklingar á aldrinum 18-67 ára valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Könnunaraðferð: Síma- og netkönnun.
Svarfjöldi: 909 einstaklingar.
Dagsetning framkvæmdar: 9.-14. september 2009.
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.