
Ef ríkisstjórnin ákveður að gera þurfi breytingar á Icesave samþykktinni þarf málið að fara aftur fyrir þing. Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn segja að það komi ekki til greina.
Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður fjárlaganefndar, segir málið nú í höndum ríkisstjórnarinnar. Hann segir að ef ríkisstjórnin taki ákvörðun um að gera breytingar á fyrirvörunum sem Alþingi hefur samþykkt vegna ríkisábyrgðar á Icesave samningnum þurfi að semja nýja tillögu og leggja hana aftur fyrir þingið, að því er fram kemur í frétt Ríkisútvarpsins.
Þar segir enn fremur:
„Guðbjartur segir að málið sé unnið opið og ríkisstjórnin upplýsi um gang mála og feti sig áfram um hvað sé mögulegt. Á því ríki trúnaður enn sem komið er. Hann er ósáttur við hávær viðbrögð samverkamanna sinna í stjórnarandstöðuflokkunum og telur að það geti orðið til þess að þessum vinnubrögðum verði ekki beitt í öðrum málum. Guðbjartur segir að það hafi legið fyrir að tvö atriði í samningum yrðu erfið. Ríkisábyrgðin gildi til ársins 2024 og ef forsendur haldi verði búið að borga reikninginn þá.
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins telur að ekki komi til greina að hverfa frá þeim fyrirvörum sem Alþingi samþykkti. Í ályktun þingflokksins segir að höfnun Breta og Hollendinga á þeim fyrirvörum sem Alþingi samþykkti í lok ágúst við samningana, feli í sér að ríkisábyrgð vegna skuldbindinganna taki ekki gildi.
Ríkisstjórn Íslands hafi ekki heimild til að víkja frá þeim skýru fyrirvörum sem gildandi lög kveði á um.
Bretar og Hollendingar hafna þeim fyrirvara að ef lánið verði ekki að fullu greitt árið 2024 þurfi þjóðirnar að semja aftur.
Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á sæti í fjárlaganefnd. Hann tekur í sama streng og telur Alþingi ekki geta skipt um skoðun í málinu. Hann segir að í rauninni séu Bretar og Hollendingar að hafna þeim fyrirvörum sem Alþingi hafi sett. Þingið hafi fengið þau skilaboð að þeir vildu ekki sætta sig við þessa fyrirvara og að þeir vilji gera breytingar á þeim. Ekki sé hins vegar hægt að breyta vilja löggjafans nema löggjafinn komi aftur saman og skipti um skoðun. Höskuldur telur það allskostar ótækt.“
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.