amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 4. febrúar 2012 - 16:03
 
Frétt birtist 27. júlí 2009 klukkan 09:59

Mat á aðildarhæfni Íslands talið taka meira en ár

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Utanríkisráðuneytið
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar.

Það tekur framkvæmdastjórn Evrópusambandsins líklega 14 mánuði, hið minnsta, að leggja mat á hvernig Ísland sé í stakk búið til að hefja aðildarviðræður við sambandið. Í dag koma utanríkisráðherrar aðildarríkja ESB saman í Brussel og munu væntanlega fela framkvæmdastjórn sambandsins að meta hversu vel Ísland er í stakk búið til að hefja aðildarviðræður. Embættismenn í framkvæmdastjórninni segja við Reuters fréttastofuna að ekki liggi fyrir hversu langan tíma það taki fyrir hana að leggja mat á umsóknarhæfi Íslands, að því er Ríkisútvarpið greinir frá.

Þar segir enn fremur:

„Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, sagði í morgun að aðildarviðræður Íslands muni að öllum líkindum ganga hratt fyrir sig, en Íslendingum muni þó ekki verða veitt nein forréttindi umfram aðrar aðildarþjóðir sambandsins. Svíar eru nú í forsæti sambandsins.

Bildt tjáði fréttamönnum fyrir fund utanríkisráðherranna að ekki væri um að ræða að Ísland fengi að stytta sér leið, heldur væri einfaldlega um skemmri veg að fara fyrir Ísland þar sem það væri þegar aðili að sameiginlegum markaði ESB og Schengen-svæðinu.“

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX