amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Sunnudagurinn 19. maí 2013 - 20:06
 
Frétt birtist 2. mars 2009 klukkan 07:55

Ótrúlegt að ákvæði stjórnar­skrár vefjist fyrir mönnum

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra.

Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, segi að það sé ótrúlegt að ákvæði stjórnarskrá vefjist fyrir mönnum þegar kemur að skipan erlendra ríkisborgara í embætti. Hann segir það með ólíkindum, að sú áhætta skuli tekin að ganga gegn þessu ákvæði, þegar seðlabankastjóri á í hlut. Björn telur að hugsanlega séu ákvarðanir seðlabankastjórans ógildanlegar.

Á heimasíðu sinni [bjorn.is], segir Björn að skörin sé farin að færast upp í bekkinn þegar ráðherrar og launaðir ráðgjafar þeirra í stjórnlagafræðum láti eins og ekki þurfi að huga að stjórnarskrá og stjórnskipunarreglum þegar erlendur ríkisborgari er settur sem seðlabankastjóri til bráðabirgða:

„Öðru vísi mér áður brá. Jóhanna Sigurðardóttir hefur árum saman hefur flutt alls kyns stjórnlagatillögur á alþingi. Hún hefur á þeirri stundu, sem hún sat við að semja allt það tillöguflóð, örugglega ekki haft hugmyndaflug til að ímynda sér, að nokkrum forsætisráðherra dytti í hug að stíga þau stjórnsýslulegu og stjórnskipulegu óheillaskref, sem hún hefur stigið á stuttum ferli sínum í forsætisráðuneytinu.

Samkvæmt stjórnarskránni skulu íslenskir ríkisborgarar skipa íslensk embætti. Að þetta vefjist fyrir einhverjum er í raun ótrúlegt. Hitt er síðan með ólíkindum, að sú áhætta skuli tekin að ganga gegn þessu ákvæði, þegar seðlabankastjóri á í hlut. Við það vakna spurningar um, hvort ákvarðanir seðlabankastjórans kunni að verða taldar ógildanlegar. Er það brýnast nú að kalla slíka óvissu yfir íslenskt fjármálakerfi?“

Björn gagnrýnir ritstjóra Morgunblaðsins og telur leiðaraskrif blaðsins séu til marks um þá „stjórnarfarslegu firringu sem ríkir“ Á laugardaginn birtist leiðari í Morgunblaðinu þar sem sagt er að vonandi leggist stjórnarandstaðan „ekki í fleiri lagakróka til að vefengja að rétt hafi verið að ráðningu hins nýja seðlabankastjóra staðið“. Um þetta segir Björn:

„Þetta snertir ekkert stjórnarandstöðuna á þingi. Málið snýr að lögmæti ákvarðana seðlabankastjóra, sem starfar við þessar aðstæður. Dómstólar eiga síðasta orð um lögmætið, hvorki ríkisstjórn, alþingi né sjálfur ritstjóri Morgunblaðsins.

Á fráfarandi seðlabankastjóra hefur verið pundað endalausum spurningum undanfarna mánuði vegna atvika í tengslum við bankahrunið. Fjölmiðlamenn hafa síður en svo sætt sig við svörin og jafnað viljað vita meira. Nú bregður svo við, að settur seðlabankastjóri segist ekki muna, hvenær hann var beðinn um að taka við embættinu við þessar sérkennilegu aðstæður - og enginn fjölmiðlamaður segir neitt. Forverarnir báru aldrei við minnisleysi - þeir hefðu betur gert það til að stöðva spurningaflóðið.“

Tengt efni

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX