amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 4. febrúar 2012 - 15:49
 
Frétt birtist 18. febrúar 2009 klukkan 17:44

Minnihluta­stjórnin gerir lítið úr stjórnskipun Íslands

Sigríður Á. Andersen er ósammála stefnu minnihluta­stjóranr VG og Samfylkingar

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Sjálfstæðisflokkurinn
Sigríður Á. Andersen

Sigríður Á. Andersen, frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, telur að misskilningur sé á ferðinni varðandi tilhögun kosninga til Alþingis, jafnvel meðal alþingismanna. Þá telur Sigríður einnig að núverandi minnihlutastjórn geri lítið úr stjórnskipan landsins.

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra fullyrti fyrir skömmu að kjósendur gætu í núverandi kerfi einungis haft svokölluð „neikvæð áhrif“ á röð frambjóðenda þess lista sem þeir kjósa og vísar þar til þess möguleika kjósenda að strika út nafn einhvers frambjóðanda. Þessu er Sigríður ósammála.

„Það er rangt að segja að útstrikanir hafi neikvæð áhrif því um leið og einn frambjóðandi fellur niður færist annar upp. Illugi Gunnarsson færðist þannig upp um eitt sæti í Reykjavík vegna útstrikanna.“

Þá bendir Sigríður jafnframt á að útstrikanir séu þó ekki eini kostur kjósenda enda séu núgildandi kosningalög afdráttarlaus um þann möguleika kjósenda að breyta röð allra frambjóðenda með því að setja númer fyrir fram þau nöfn sem þeir vilja hafa áhrif á. Þá séu kosningalög einnig mjög skýr hvað þetta varðar en orðrétt segir í lögunum:

„Vilji kjósandi breyta nafnaröð á lista þeim er hann kýs setur hann tölustafinn 1 fyrir framan það nafn er hann vill hafa efst, töluna 2 fyrir framan það nafn sem hann vill hafa annað í röðinni, töluna 3 fyrir framan það nafn sem hann vill hafa það þriðja o.s.frv., að svo miklu leyti sem hann vill breyta til.“

Aðspurð telur Sigríður það óskiljanlegt að minnihlutastjórn skuli nota stuttan starfstíma sinn til þeirra breytinga sem boðaðar hafa verið.

„Það er óskiljanlegt að minnihlutastjórn vinstri manna kjósi að nýta þessa fáu daga sem hún hefur við stjórnvölinn til þess að gera lítið úr nánast öllu sem viðkemur stjórnskipan þessa lands.“

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX