
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra tók í dag, fyrir hönd norrænna starfsbræðra sinna, við skýrslu Thorvald Stoltenberg, fyrrverandi utanríkis- og varnarmálaráðherra Noregs, um norrænt samstarf í utanríkis- og öryggismálum. Skýrslan var kynnt á fundi fundi norrænu utanríkisráðherranna sem haldinn var í Ósló í dag, að því er fram kemur í tilkynningu utanríkisráðuneytisins.
„Í skýrslunni er horft til næstu 10-15 ára og gerðar tillögur um nánara samstarf Norðurlandanna, m.a. varðandi friðaruppbyggingu og friðarumleitanir, loftrýmis- og landhelgisgæslu, öryggismál á Norðurslóðum, tölvuöryggi, samnýtingu og samvinnu í rekstri sendiráða og samvinnu á sviði varnarmála.
Á meðal tillagnanna eru hugmyndir um aukið öryggissamstarf Norðurlanda á Norðurslóðum og um sameiginlega loftrýmisgæslu yfir Íslandi. Össur taldi hugmyndina athyglisverða og sagði hana verða tekna til frekari umræðu á Íslandi.
Almennt tóku ráðherrarnir undir tillögur Stoltenbergs sem verða útfærðar nánar og ræddar á næsta fundi ráðherranna, sem haldinn verður á Íslandi í vor.
Norrænu utanríkisráðherrarnir fólu Stoltenberg í júní á síðasta ári að vinna óháða skýrslu um norræna samvinnu í utanríkis- og öryggismálum næstu 10-15 árin. Norrænir sérfræðingar lögðu honum til efni, af Íslands hálfu þau Guðmundur Alfreðsson og Kristrún Heimisdóttir,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.