amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 17:54
 
Frétt birtist 8. febrúar 2009 klukkan 22:29

Björn sammála Davíð að bréf Jóhönnu sé einsdæmi

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Björn Bjarnason alþingismaður.

Björn Bjarnason alþingismaður tekur undir með Davíð Oddssyni, formanni bankastjórnar Seðlabankans, að bréf sem Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sendi bankastjórum Seðlabankans í síðustu viku, „með lítt dulbúnum hótunum“, sé einsdæmi.

Björn segir á vef sínum:

„Í ræðu á alþingi 4. febrúar gagnrýndi ég þá aðferð, sem Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hafði við að hóta seðlabankastjórum uppsögn með lagasetningarvaldi, ef annað dygði ekki. Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar seðlabankans, sendi Jóhönnu svar í dag og lýsti vanþóknun á bréfi Jóhönnu og aðferðinni við að koma því til viðtakenda. Hann segir réttilega:

„Bréf af þessu tagi með lítt dulbúnum hótunum til embættismanna er einsdæmi, ekki eingöngu hér á landi, heldur einnig um allan hinn vestræna heim. Lög sem eiga að tryggja sjálfstæði seðlabanka og forða pólitískri aðför að seðlabankastjórninni hafa nú verið þverbrotin. Ábyrgð ráðherrans er því mikil.“

Davíð telur bréfið brjóta „allar venjur um embættisleg bréf af þessu tagi“ og það hljóti að hafa verið samið utan forsætisráðuneytisins. Hann telur, að við afsögn Björgvins G. Sigurðssonar hafi mönnum orðið „á stjórnsýsluleg afglöp, þegar brotthlaupinn ráðherra skildi Fjármálaeftirlitið eftir stjórnlaust.“

Þá segir Davíð, að Jóhanna hafi rangtúlkað afsagnarbréf Ingimundar Friðrikssonar, þegar hún hafi sagt hann leggja „framtaki“ hennar lið. Í bréfinu hafi Ingimundar „harmað ósanngjarnar og órökstuddar dylgjur“´í bréfi Jóhönnu og talið hana vega „ómaklega að starfsheiðri sínum og æru!“

Í fyrrnefndri þingræðu sagði ég:

„Ég minnist þess ekki, að hæstvirtur forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir hafi gert athugasemdir við ákvarðanir Seðlabanka Íslands í peningamálum, á meðan ég sat með henni í ríkisstjórn.“

Bréfi sínu lýkur Davíð með þessum orðum:

“Það er hlálegt að ráðherra úr hópi þeirra sem hlustuðu ekki og sjálf lyfti ekki litla fingri til að stemma stigu við því sem var að gerast skuli nú ganga fram með þeim hætti sem hún gerir.

Ég hef hins vegar aldrei hlaupist frá neinu verki sem ég hef tekið að mér og mun ekki heldur gera það nú.„

Sagt var í fréttum, að Jóhanna Sigurðardóttir hefði ekki kynnt sér bréfið fyrir kvöldfréttir ljósvakamiðlanna og virtist það ekki koma fréttamanni sjónvarps ríkisins í opna skjöldu. Miðað við óðagotið í allri embættisfærslu Jóhönnu vegna þessa máls, kemur þetta þó óneitanlega á óvart.“

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX