

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur sett á fót ráðgjafarhóp ríkisstjórnarinnar til að vinna tillögur um breytingar á stjórnarskránni. Björg Thorarensen, prófessor í stjórnskipunarrétti og forseti lagadeildar Háskóla Íslands, mun leiða ráðgjafarhópinn, sem undirbúa mun frumvarp til stjórnarskipunarlaga sem lagt verði fram á Alþingi á næstu vikum. Mun Björg koma tímabundið til starfa í forsætisráðuneytinu á meðan á þessu verkefni stendur. Aðrir í hópnum eru þau Bryndís Hlöðversdóttir, forseti lagadeildar Háskólans á Bifröst, og Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, að því er fram kemur í tilkynningu forsætisráðuneytisins.
„Í erindisbréfi til ráðgjafarhópsins er vísað í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og honum falið að gera tillögu um stjórnarskrárákvæði um eftirtalið:
a) auðlindir í þjóðareign.
b) þjóðaratkvæðagreiðslur.
c) aðferð við breytingar á stjórnarskrá með sérstakri þjóðaratkvæðagreiðslu.
Jafnframt er þess óskað að ráðgjafarhópurinn meti í ljósi starfs stjórnarskrárnefndar á árunum 2005-2007, og þess víðtæka samráðs sem þá átti sér stað, hvort rétt sé að gera tillögu um fleiri stjórnarskrárbreytingar á þessu stigi, einkum varðandi umhverfisvernd.
Þá verður ráðgjafarhópnum falið að hefja undirbúning lagasetningar varðandi stjórnlagaþing eftir komandi alþingiskosningar og móta tillögur um nauðsynlega lagasetningu og eftir atvikum setningu bráðabirgðaákvæðis í stjórnarskrá.
Forsætisráðherra mun að fengnum tillögum framangreindra sérfræðinga hafa samráð við alla flokka, sem fulltrúa eiga á Alþingi, áður en frumvarp til stjórnarskipunarlaga verður lagt fram á Alþingi.
Þá hefur forsætisráðherra falið Þorkeli Helgasyni, stærðfræðingi, að stýra vinnu við undirbúning hugsanlegra breytinga á kosningalögum fyrir komandi kosningar í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem segir að kosningalögum verði breytt með þeim hætti að opnaðir verði möguleikar á persónukjöri í kosningum til Alþingis. Samráð verður haft við fulltrúa allra stjórnmálaflokka sem fulltrúa eiga á Alþingi í þessari vinnu,“ segir í tilkynningu forsætisráðuneytisins.
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.