
Davíð Oddsson, seðlabankastjóri mun ekki verða við ósk forsætisráðherra um að láta af störfum. Það er því ljóst að hvorki Davíð né Eiríkur Guðnason verða við beiðni Jóhönnu um afsögn úr starfi seðlabankastjóra. Ingimundur Friðriksson hefur fallist á beiðni forsætisráðherra.
Davíð boðsendi síðdegis í dag bréf til Jóhönnu Sigurðardóttir forsætisráðherra. Davíð bendir á augljósa annmarka á bréfi forsætisráðherra þar sem óskað var eftir að hann segði upp störfum, enda bréfið varla skrifað innan veggja ráðuneytisins.
„Af augljósum ástæðum ber ég mikla virðingu fyrir því embætti sem núverandi forsætisráðherra gegnir. Og þrátt fyrir augljósa annmarka sem eru á öllum þessum málatilbúnaði vil ég ekki láta hjá líða að mín afstaða sé kunn. Ég var skipaður til starfa 20. október 2005 til ákveðins afmarkaðs tíma. Það starf hef ég reynt að rækja eins vel og ég kann. Það gleður mig, að jafnvel þeir sem helst vilja leggja til mín hafa ekki getað fundið neitt málefnalega athugavert við störf mín og reyndar tekið sérstaklega fram að við mín störf sé ekkert að athuga. Ég þurfi bara að fara frá af óefnislegum ástæðum.“
Í lok bréfsins segir Davíð síðan, eftir að hafa bent á að bankastjórar seðlabankans hafi ítrekað varað við að í óefni stefndi hér á landi:
„Það er hlálegt að ráðherra úr hópi þeirra sem hlustuðu ekki og sjálf lyfti ekki litla fingri til þess að stemma stigu við því sem var að gerast skuli nú ganga fram þeim hætti sem hún geri.“
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.