

Í jómfrúrræðu sinni á Alþingi í umræðum um breytingar á lögum um Seðlabanka Íslands sagði Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, meðal annars:
„Öll saga eftirstríðsáranna sem er sá tími sem við höfum haft okkar eigin sjálfstæða gjaldmiðil í þeim skilningi að hann var ekki bundinn föstu gengi gagnvart dönsku krónunni var svona. Þetta er ein samfelld hrakfallasaga.
Þótt Íslendingum hefði um margt tekist að reka efnahagslíf sitt ágætlega hefði þeim aldrei tekist, nema kannski í stuttan tíma í senn að reka hér almennilegan seðlabanka oh halda uppi stöðugri mynt með stöðugu verðlagi og aldrei „komist nálægt því að búa til innlenda mynt, sem er gjaldgeng utan landsteinana.“
Ráðherrann sagði, að hrakfallasagan væri „ekkert endilega einstökum starfsmönnum, eða í raun og veru ekki einstökum starfsmönnum“ seðlabankans að kenna, þetta væri samt forsagan sem við byggjum við og þyrftum að vinna úr. Aldrei hefði gengið verr að reka seðlabankann en undanfarin ár, það hefði að vísu kannski gengið ágætlega rétt undir lok 20. aldar en síðan hefði „ekki séð til sólar:“ Bankinn hefði verið „hrakinn af“ gengismarkmiði sínu árið 2001, vandræðin þá væru smávægileg við það, sem nú væri við að glíma. Bankinn hefði aldrei náð sér eftir að hafa skipt yfir í verðbólgumarkmið. Auðvitað væri hægt að leggja seðlabankann niður en þá þyrftum við „að taka upp aðra mynt í leiðinni og það er víst einhver andstaða við það,“ sagði Gylfi Magnússon.
Bankinn hefð ekki heldur byggt upp „trúverðugan og öflugan gjaldeyrisforða.“ Bankinn hefði jafnvel „lent í vandræðum meða tiltölulega hversdagsleg tæknileg vandamál eins og að útbúa trúverðugar hagtölur.“ Þá hefði hann lent í „verulegum vandræðum með að starfa sem bakhjalr viðksiptabankakerfisins“ og það væri ekki hægt „að komast að annari niðurstöðu en að það hafi skipt verulegu máli í því að hér hrundi viðskiptabankakerfið.“
Þá sagði viðskiptaráðherra:
“Hverjum svo sem það er um að kenna stendur bankinn eftir rúinn trausti og það gerir hann nánast óstarfhæfan. Í fjármálum, eins og raunar öllum viðskiptum en hvergi meira en í fjármálum, skiptir traust gífurlega miklu máli til að viðskipti geti gengið eðlilega fyrir sig. Án þess á bankinn sér raunverulega ekki viðreisnar von. Það er engin von til þess að hann nái markmiðum sínum, hvort sem það eru einhver hversdagsleg markmið um verðbólgu eða að verða trúverðugur bakhjarl viðskiptabankakerfisins þannig að endurreisn þess geti gengið eins og við öll vonumst eftir.
Án trúverðugs seðlabanka er lítil von til þess að við fáum nokkurn tíma trúverðugt viðskiptabankakerfi. Þegar erlendir aðilar horfa til Íslands og velta því fyrir sér hvort þeim sé óhætt að eiga viðskipti við íslenskar fjármálastofnanir staldra þeir óhjákvæmilega við og skoða Seðlabankann og ef hann virðist ekki ráða við hlutverk sitt vilja þeir ekki koma nálægt íslenskum fjármálastofnunum.„
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.