
Framsóknarflokkurinn tekur sinn tíma og boða eigin tillögur um hvaða leiðir eigi að fara við stjórn landsins á næstunni. Ólíklegt er því að ný minnihlutastjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna, með stuðningi Framsóknarflokksins, taki við völdum fyrr en eftir helgi. Forráðamenn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna höfðu áður sagt að stjórnin yrði mynduð á morgun, laugardag.
„Það vantaði upp á raunhæfar leiðir til að hrinda í framkvæmd þeim hugmyndum sem þegar eru komnar fram, segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. “Það er samstaða um markmiðin, en þetta snýst um leiðirnar,„ segir Sigmundur í viðtali við Vísi.
Þar segir síðan:
„Forystumenn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna hugðust kynna nýja ríkisstjórn í dag en það hefur dregist vegna óánægju framsóknarmanna með drög að stjórnarsáttmálanum. “Við ætlum okkur ekki að afhenda óútfylltan tékka,“ segir Sigmundur, en framsóknarmenn hafa bent á að markmið ríkisstjórnarinnar verði að vera fá en skýr.
Sigmundur segir að það hafi orðið að niðurstöðu að framsóknarmenn myndu sjálfir koma með sínar eigin tillögur að því hvaða leiðir eigi að fara. Framsóknarflokkurinn muni vinna þá hugmyndavinnu í kvöld og á morgun með stuðningi hagfræðinganna Jóns Daníelssonar og Ragnars Árnasonar.„
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.