amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 25. maí 2013 - 02:19
 
Frétt birtist 9. janúar 2009 klukkan 08:28

Villandi og rangar fréttir um stofnun Heilbrigði­stofnunar Norðurlands

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Yfirlýsing frá framkvæmdastjórn FSA að gefnu tilefni

Vegna villandi og rangra frétta um stofnun Heilbrigðistofnunar Norðurlands og snúið hafa meðal annars að stöðu og hlutverki Sjúkrahússins á Akureyri vill framkvæmdastjórn Sjúkrahússins á Akureyri taka fram nokkur atriði sem stofnunin hefur haft að leiðarljósi undanfarin ár.

Það hefur verið stefna stofnunarinnar til langs tíma að veita sem mesta og besta heilbrigðisþjónustu heima í héraði. Með þetta að leiðarljósi hefur FSA haft forgöngu um að sérfræðingar þess veittu íbúum á Norður- og Austurlandi heilbrigðisþjónustu á heimaslóð. Þessi stefna er í fullu samræmi við það sem heilbrigðisráðherra hefur kynnt opinberlega í tengslum við þær skipulagsbreytingar sem framundan eru.

Í þessu sambandi er rétt að taka fram að sérfræðingar FSA hafa veitt þjónustu á Sauðárkróki, Húsavík, Egilstöðum og Norðfirði. Með þessu hefur sérhæfð heilbrigðisþjónusta verið færð nær íbúum á þessum stöðum og þeim veitt þjónusta í fleiri sérgreinum en áður var. Þannig hafa læknar FSA veitt þjónustu í yfir 30 vikur á Sauðárkróki í eftirtöldum sérgreinum; barnalækningum, bæklunarlækningum, skurðlækningum, háls-, nef- og eyrnalækningum, þvagfæraskurðlækningum, æðaskurðlækningum, myndgreiningu, öldrunarlækningum og endurhæfingarlækningum.

Á Húsavík fara læknar frá FSA og sinna sjúklingum í eftirtöldum sérgreinum; Geðlækningum, kvensjúkdómalækningum, augnlækningum, svæfingalækningum, háls-, nef- og eyrnalækningum.

Til Egilstaða og Norðfjarðar fara sérfræðingar frá FSA og sinna sjúklingum í eftirfarandi sérgreinum; geðlækningum, háls-, nef- og eyrnalækningum, kvensjúkdómalækningum, þvagfæraskurðlækningum og bæklunarskurðlækningum.

Sérfræðingur í húðsjúkdómalækningum sem starfar við Heilbrigðisstofnun Austurlands kemur og starfar einnig á FSA og veitir mikilsverða þjónustu.

Öll myndgreining á Norður- og Austurlandi er nú þegar sameinuð í einum grunni á FSA og með því hefur verið hægt að veita mun betri þjónustu í myndgreiningu og rannsóknum en áður. Sameining myndgreiningarinnar hefur sýnt að sjúklingar fá fyrr greiningu og í ákveðnum tilvikum sérfræðiþjónustu mun fyrr en ella.

Framkvæmdastjórn FSA lítur svo á að sameining heilbrigðisstofnana á Norðurlandi hafi í för með sér tækifæri til bættrar og betri heilbrigðisþjónustu á þann hátt sem FSA hefur haft að leiðarljósi á undaförnum árum. Með því að veita sem besta þjónustu sem næst fólkinu á sem hagkvæmastan hátt, þjónustu þar sem öryggi sjúklinga er haft að leiðarljósi opnast möguleikar á að styrkja heilbrigðisþjónustuna á Norðurlandi enn frekar.

Það er von framkvæmdastjórnar að sú vinna sem nú fer af stað taki mið af þessu. Heilbrigðisráðherra hefir ákveðið að starfsemina skuli skipuleggja og ákveða í samvinnu við heimamenn, þ.e. hvaða þjónustu á að veita á hverjum stað og af hvaða fagfólki.

Því ber að fagna að haft skuli að leiðarljósi öryggi við sjúklinga og að þjónusta við þá standist fagleg og heilsuhagfræðileg viðmið. Mikill mannauður og sérfræðiþekking er til staðar í heilbrigðistofnununum á Norðurlandi sem vitaskuld nýtist í sameinaðri, sterkari stofnun.

8. janúar 2009

Halldór Jónsson

forstjóri

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX