amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 17. maí 2012 - 13:58
 
 
Fuglahvísl birtist 23. desember 2008 klukkan 15:00

Páll yfirbýður Ingibjörgu Sólrúnu

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Páll Magnússon er kominn í samkeppni við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur.

Á bloggsíðu sinni 23. desember vitnar Páll Magnússon í grein Stefáns Jóhanns Stefánssonar, varaborgarfulltrúa Samfylkingarinnar, í Morgunblaðinu 23. desember. Segir Páll, að Stefán Jóhann hafi „afhjúpað sína eigin menn sem marklausa froðusnakka“ í ESB-aðildarmálum.

Læðist sá grunur að Páli „að Evrópusambandsaðild hafi aldrei átt að vera annað en Potemkín-tjöld til að laða Evrópusinnaða kjósendur að flokknum [Samfylkingunni] á fölskum forsendum.“

Páll segist vera með skarpari aðildarstefnu en forysta Samfylkingarinnar með þessum orðum:

„Ólíkt Samfylkingarforystunni er mér fyllsta alvara þegar ég segi að stjórnvöld verði hið fyrsta að leggja fram umsókn um aðild að ESB. Íslenska krónan á sér ekki framtíð og engar aðrar leiðir virðast færar en að taka evru upp sem gjaldmiðil að undangenginni aðild að ESB.“

Hér er ekki töluð nein tæpitunga af hálfu formannsframbjóðandans í Framsóknarflokknum og langt bil milli þessarar afdráttarlausu ESB-aðildarstefnu og sjónarmiða Guðna Ágústssona, fyrirverandi formanns. Páll Magnússon er einnig á annarri skoðun en Valgerður Sverrisdóttir, sem hefur hreykt sér af því, að verða fyrst stjórnmálamanna til að krefjast einhliða upptöku á evru.

Smáfuglarnir velta fyrir sér, hvernig Ingibjörn Sólrún snúi sér gagnvart hinum nýja keppinaut, sem sakar hana um að hafa rangt við í Evrópuspilinu um kjósendur.

 
Meira fuglahvísl

345 dagar eftir í starfi hjá Páli Magnússyni

Smáfuglarnir velta fyrir sér hvað Páll Magnússon, hinn máttlausi útvarps­stjóri, muni taka sér fyrir hendur þegar honum verður sagt upp störfum eftir næstu kosningar. Allt bendir til þess Ísland losni undan oki vinstri­stjórnar eftir næstu kosningar og þá verði tekið til hendinni við að skikka opinberar stofnanir til þess að fylgja settum lögum.

Er fólkið í ESB auglýsingunum ekki misnotað?

Smáfuglarnir hafa undanfarna daga séð hvern vinstrimanninn á fætur öðrum kalla misnotkun að þeim sem komið hafa fram í auglýsingum fyrirtækja og sveitar­félaga um land allt gegn aðför vinstri­stjórnar­innar að sjávar­útveg. Segja þeir jafnan að verið sé að misnota fólkið sem fram kemur og að þetta séu auglýsingar af verstu sort.

Enginn hlekkjaði sig við tæki á Úlfarsfelli

Hræsni umhverfisverndarsinna er oft með ólíkindum. Þannig sagði enginn neitt þegar stórvirkar vinnuvélar lögðu af stað upp mosavaxið Úlfarsfellið til að grafa þar skurð, tæta upp mosa og að endingu reisa 40m hátt mastur á toppi fellsins. Ef hins vegar framkvæmdir hefjast á landsbyggðinni af einhverju tagi eru allir mættir með skilti, borða, handjárn og tjaldbúðir.

Engir atvinnuleytendur á Suðurnesjum?

Smáfuglarnir hafa oft látið orðið „atvinnuleitendur“ angra sig en með því er verið að gera atvinnuleysi þægilegra fyrir þá sem ekki hafa vinnu. Letin er gerð þægilegri og afsakanlegri. Er ekki sá sem er atvinnuleitandi samkvæmt orðsins hljóðan að vera að leita sér að vinnu? Ekki virðist raunin vera sú á Suðurnesjum þar sem fimm sóttu um 11 auglýstar stöður á saumastofu Víkurprjóns.

Heyrðu heims­markaðir ekki í Össuri og Oddnýju?

Smáfuglarnir sjá að evran hefur ekki verið veikari gagnvart pundi í bráðum fjögur ár. Engu líkara er en að orð Össurar Skarphéðinssonar og Oddnýjar Harðardóttur um skýringar á vanda evru­svæðisins hafi ekki náð eyrum heimsins. Þetta er furðulegt og hlítur að vera misskilningur.

RÚV þagði um ásakanir forseta í sinn garð

Smáfuglarnir lesa í Vefþjóðviljanum athyglisverða staðreynd. Fréttastofa RÚV nefndi það ekki einu orði að forseti Íslands hafi borið fréttastofuna þungum sökum þess efnis að fréttastofan gangi erinda tiltekins frambjóðanda. Vefþjóðviljinn segir: Þessar ásakanir eru alvarlegar og sérstaklega fréttnæmt að sá, sem ber þær fram á hendur fréttastofu Ríkisútvarpsins, sé forseti Íslands.

Þóra Arnórs­dóttir var í framboði fyrir Alþýðu­flokkinn

Smáfuglarnir sjá að Þóra Arnórs­dóttir, forsetaframbjóðandi Samfylkingar­innar, reynir nú að þvo af sér fortíð sína í vinstri­flokkunum. Aðeins nokkrir dagar eru frá því að gamall listi yfir kennara í stjórnmálaskóla Samfylkingar­innar fór á flakk á netinu og Þóra neitaði að hafa kennt í skólanum. Ekki voru netverjar með frekari sönnunargögn svo málið féll sumpart niður.

Dæmdir fari ekki á Bessastaði

Smáfuglarnir furða sig á því að umræðu um refsidóm Svavars Halldórssonar, maka forsetaframbjóðanda Samfylkingar­innar Þóru Arnórsdóttur, skuli vera koðnuð niður. Hvað sem segja má um Svavar Halldórsson nú þá breytir það ekki því að hann hefur hlotið alvarlegan dóm fyrir alvarlegt brot. Forseti Íslands er æðsti embættismaður landsins og hefur með höndum að staðfesta lög frá Alþingi.

 
 
©2012 - - RSS - Um AMX