amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 21. maí 2013 - 07:34
 
Frétt birtist 12. febrúar 2010 klukkan 12:10

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Sjónvarpið
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins.

Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru.

Samkvæmt könnun Frjálsar verslunar fengi Sjálfstæðisflokkurinn um 35% atkvæða ef gengið yrði til kosninga nú. Vinstri grænir eru með 26% fylgi og Samfylking með 22%. Framsóknarflokkurinn er 15%. Aðrir fá 2%.

Samkvæmt þessu fengi D-listi 22-23 þingmann (16 núna), Samfylking 14 (20 nú), Framsókn 10 (9 nú), Vinstri græn 16-17 (14 nú) og aðrir engan (4 nú). Yrðu þetta úrslitin væri aðeins hægt að mynda tveggja flokka stjórn með Sjálfstæðismönnum.

Í frétt á heimur.is segir einnig:

„Alls voru 636 spurðir og mikið var um óvissa og þá sem ekki vildu svara. Í könnuninni voru 36% óviss eða vildu ekki svara, Um 6% ætla ekki að kjósa eða skila auðu. Reynslan sýnir að óákveðnir séu yfirleitt allmargir þegar langt er til kosninga.

Vikmörk eru allvíð eða miðað við 95% vissu eru +/-5,0%. Þetta þýðir t.d. að í spá um fjölda þingmanna Samfylkingar, VG og Sjálfstæðismanna gæti munað 2-3 þingmönnum til eða frá. Hjá hinum flokkunum er óvissan minni í prósentustigum talið eða 1-2 þingsæti.

Könnunin gefur til kynna að VG og Sjálfstæðisflokkur styrki stöðu sína frá nýlegum könnunum. Samfylking er nú minni en VG en hefur verið talsvert stærri síðan í mars í fyrra. Munurinn er við skekkjumörk.

Einnig var spurt um afstöðu til Icesave-samninganna og birtast niðurstöður úr þeirri könnun fyrir hádegi á morgun, föstudaginn 12. febrúar.

Í fyrsta tölublaði Frjálsrar verslunar sem kemur út eftir miðjan febrúar verða birtar niðurstöður könnunarinnar um vinsælasta fyrirtæki landsins.“

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

Capacent vinnur verkefni fyrir Alþjóða­bankann

Fjármögnun á vörudreifingu eða Supply Chain Financing (SCF) getur verið heppilegur stuðningur við framleiðendur í þróunarríkjum sem vilja koma afurðum sínum á alþjóðlegan markað. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun sem Capacent hefur unnið fyrir International Finance Corporation, sem er sú eining Alþjóða­bankans, eða World Bank Group í Washington, er sinnir stuðningi við einka­fyrirtæki í þróunarríkjum.

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX