
Um 66% landsmanna hyggjast greiða atkvæði gegn Icesave-lögunum í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem fyrirhuguð er 6. mars næstkomandi. Kemur þetta fram í könnun sem Capacent Gallup gerði 20.-26. janúar síðastliðinn, að því er fram kemur hjá Greiningu Íslandsbanka.
Þar segir enn fremur:
„Er þetta mun hærra hlutfall en fyrir um mánuði síðan en í könnun sem gerð var 5.-6. janúar sögðust 41% ætla að greiða atkvæði gegn lögunum. Andstaðan er hins vegar svipuð og hún var strax rétt fyrir miðjan mánuðinn en í könnun sem Capacent Gallup gerði 9.-11. janúar sögðust 62% ætla að greiða atkvæði gegn lögunum og 66% í könnuninni sem gerð var 12.-19. janúar.
Nú segjast 30% ætla að kjósa með lögunum en í könnuninni fyrir mánuði sögðust 53% ætla að gera það. Í könnuninni 9.-11. janúar var hlutfall þetta komið niður í 33%. Hlutfall þeirra sem ætla að skila auðu hefur lækkað aðeins en það mælist nú 4% en var 6% í janúarbyrjun.
Stuðningur við ákvörðun forsetans um að staðfesta ekki Icesave-lögin hefur aukist jafnt og þétt í janúar. Í könnuninni sem gerð var 5.-6. janúar voru tæplega 41% svarenda sammála ákvörðun forsetans en í könnuninni sem gerð var í lok janúar sögðust 61% svarenda vera sammála ákvörðun forsetans.“
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.