amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Fimmtudagurinn 17. maí 2012 - 13:57
 
Frétt birtist 1. febrúar 2010 klukkan 22:30

Sjálfstæði­flokkurinn bætir við sig fylgi í Reykjavík

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Jmerelo
Ráðhús Reykjavíkur.

Sjálfstæðiflokkurinn bætir við sig fylgi í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Gallup. Samfylkingin og Vinstri græn í Reykjavík gætu hins vegar myndað saman meirihluta í borgarstjórn, þrátt fyrir að tapa lítillega frá síðustu könnun, að því er Ríkisútvarpið greinir frá.

Þar segir enn fremur:

„Sjálfstæðiflokkurinn bætir við sig fylgi í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Gallup. Samfylkingin og Vinstri græn í Reykjavík gætu hins vegar myndað saman meirihluta í borgarstjórn, þrátt fyrir að tapa lítillega frá síðustu könnun.

Gallup spurði nærri 2.600 atkvæðisbæra Reykvíkinga að því hvað þeir myndu kjósa, yrði gengið til borgarstjórnarkosninga nú. Rúm 70% svöruðu. Aðrir en stóru flokkarnir fjórir fengju samanlagt 2% atkvæða.

41% myndi kjósa sjálfstæðisflokkinn ef kosið yrði til borgarstjórnar nú samkvæmt könnun Gallup. Sjálfstæðisflokkurinn yrði því stærsti flokkurinn með sjö borgarfulltrúa. Þetta er tveimur prósentustigum meira en í síðustu könnun fyrir mánuði en einu prósentustigi minna en í kosningunum 2006. Framsóknarflokkurinn fengi 5% nú, rétt eins og síðast, sem er litlu minna en í kosningunum næði ekki inn manni.

Þriðjungur ætlar sér að kjósa Samfylkinguna, sem tapar einu prósentustigi frá síðustu könnun, en er þó áfram vel yfir kjörfylgi. Þetta myndi skila fimm borgarfulltrúum.

19% segjast ætla að kjósa Vinstri græn sem tapar tveimur prósentustigum frá því síðast en fékk 14% í kosningunum. Tveir borgarfulltrúar þar.

Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar er því fallinn samkvæmt þessu. VG og Samfylkingin gætu hins vegar myndað nýjan átta manna meirihluta. Hvor um sig gæti líka gangið í eina sæng með sjálfstæðismönnum. Meirihluti V og D hefði tíu borgarfulltrúa.

Sterkasti meirihlutinn yrði undir listabókstöfunum S og D og hefði 12 borgarfulltrúa af 15.“

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 - - RSS - Um AMX