
Andrea Hjálmsdóttir gefur kost á sér í 1. sæti á lista Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs til bæjarstjórnarkosninga á Akureyri í vor. Hún hefur verið félagi í VG til margra ára og unnið að ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Vinstri græn á Akureyri.
Velferðarmál eru Andreu einkum hugleikin og hún hyggst vinna ötullega að félagslegum jöfnuði, jafnrétti og umhverfisvernd í bæjarfélaginu, segir í tilkynningu:
„Kallað hefur verið eftir endurnýjun í íslenskum stjórnmálum en ljóst er að rétt er að hefjast löng vegferð til réttlátara samfélags. Það er tvímælalaust stærsta forgangsmál næsta kjörtímabils að beina sjónum að heiðarlegum, réttsýnum og hreinlegum stjórnmálum. Auka þarf aðkomu almennings að ákvarðanatöku auk þess sem stefnumótun bæjarfélagsins þarf að taka mið að þörfum beggja kynja. Á tímum efnahagsþrenginga skiptir forgangsröðun meginmáli. Mikilvægasta auðlegð samfélagsins felst í komandi kynslóðum og tryggja þarf jafnan aðgang ungmenna að menntun og tómstundum.
Lífæð hvers samfélags felst í fólkinu sem það byggir og því umhverfi sem því er búið. Ekkert samfélag þrífst án tækifæra til atvinnu og eins og það er mikilvægt að leita nýrra leiða til atvinnusköpunar á nýjum vettvangi þarf að búa atvinnulífinu sem fyrir er betri og lífvænlegri skilyrði. Skipulag bæjarfélags þarf að fara fram á forsendum fólksins til að þróa megi lífrænt og gott samfélag.“
Andrea Hjálmsdóttir er 39 ára. Hún er fædd og uppalin á Akranesi en hefur verið búsett á Akureyri síðastliðinn 10 ár. Andrea lauk sveinsprófi í gullsmíði árið 1996 og starfaði sem slíkur til ársins 2002 þegar hún hóf nám í Háskólanum á Akureyri. Úr HA útskrifaðist hún vorið 2007 með BA gráðu í nútímafræði og samfélags- og hagþróunarfræði. Andrea lauk svo meistaraprófi í félagsfræði frá Háskólanum í Bresku Kólumbíu í Vancouver, Kanada haustið 2009. Hún starfar sem aðjúnkt við Hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri. Andrea er gift Halli Gunnarssyni, tölvunarfræðingi og eiga þau tvær dætur, Fönn 10 ára og Dögun 5 ára.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.
Capacent vinnur verkefni fyrir Alþjóðabankann
Fjármögnun á vörudreifingu eða Supply Chain Financing (SCF) getur verið heppilegur stuðningur við framleiðendur í þróunarríkjum sem vilja koma afurðum sínum á alþjóðlegan markað. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun sem Capacent hefur unnið fyrir International Finance Corporation, sem er sú eining Alþjóðabankans, eða World Bank Group í Washington, er sinnir stuðningi við einkafyrirtæki í þróunarríkjum.