amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Föstudagurinn 3. september 2010 - 13:17
 
Frétt birtist 7. janúar 2010 klukkan 21:58

Gunnar vísar því á bug að hafa unnið gegn Gunnsteini

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Kópavogsbær
Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri í Kópavogi.

Gunnar Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri í Kópavogi, vísar því á bug í viðtali við Ríkisútvarpið að hann eða fylgismenn hans hafi unnið gegn Gunnsteini Sigurðssyni, núverandi bæjarstjóra frá því í sumar. Gunnar segist sjálfur hafa lagt til að Gunnsteinn tæki við starfi bæjarstjóra og því sé fráleitt að hann hafi lagt stein í götu bæjarstjórans. Auk þess hafi hann ekki komið nálægt bæjarpólitík í Kópavogi síðasta hálfa árið. Gunnar vildi ekki tjá sig frekar við fréttastofu um þetta mál. Hann staðfestir þó að hann sækist eftir efsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi í komandi bæjarstjórnarkosningum.

Í fréttinni segir enn fremur:

„Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri í Kópavogi og leiðtogi sjálfstæðismanna þar, ætlar hinsvegar ekki að bjóða sig fram fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Gunnsteinn sagði í kvöld að ástæðan væri óviðunandi togstreita og óróleiki í röðum sjálfstæðismanna í Kópavogi. Hann sagði ljóst að Gunnar Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri, og fylgismenn hans hefðu ekki stutt við bakið á sér. Við þessar aðstæður geti hann ekki hugsað sér að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi kosningar.

Gunnsteinn tók við sem bæjarstjóri síðasta sumar, þegar Gunnar Birgisson sagði af sér í kjölfar þess að rannsókn hófst á málum lífeyrissjóðs starfsmanna bæjarins. Gunnsteinn talar um flokkadrætti og ósætti í röðum sjálfstæðismanna í Kópavogi síðan hann tók við. Hann ætlar að halda áfram sem bæjarstjóri þar til nýr verður ráðinn í sumar en segist ekki geta hugsað sér að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir kosningarnar í vor.

Hann segir að margir hafi verið ósáttir við þá ákvörðun Gunnars að segja af sér. Síðan þá hafi skort á einingu innan Sjálfstæðisflokksins.“

 
Fleiri fréttir

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

Capacent vinnur verkefni fyrir Alþjóða­bankann

Fjármögnun á vörudreifingu eða Supply Chain Financing (SCF) getur verið heppilegur stuðningur við framleiðendur í þróunarríkjum sem vilja koma afurðum sínum á alþjóðlegan markað. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun sem Capacent hefur unnið fyrir International Finance Corporation, sem er sú eining Alþjóða­bankans, eða World Bank Group í Washington, er sinnir stuðningi við einka­fyrirtæki í þróunarríkjum.

 
 
©2010 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX