
Umfangsmesta söfnun undirskrifta fór fram árið 1974 þegar hópur einstaklinga hafði forgöngu um að landsmenn skoruðu á Alþingi og ríkisstjórn að standa vörð um öryggi landsins, með aðild að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamningnum við Bandaríkin. Söfnunin var undir heitinu Varið land.
Þá hafði vinstri stjórn Framsóknarflokksins, Alþýðubandalagsins og Samtaka frjálslyndra og vinstri manna uppi áform að segja upp varnarsamningnum við Bandaríkin.
Varið land, undirskriftasöfnunin, stóð frá 15. janúar til 20. febrúar 1974. Markmiðið var að sýna stuðning landsmanna fyrir veru varnarliðsins á Íslandi. 55.522 undirskriftum var safnað og þær afhentar Alþingi 21. mars sama ár. Miklar deilur urðu um þessa söfnun, sem fór fram um allt land og urðu nokkrir forystumanna hennar fyrir aðkasti. Síðar sama árs hrökklaðist vinstri stjórnin frá og eftir kosningar tók við stjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.
Áskorun Varins lands hljóðaði svo:
„Við undirritaðir skorum á ríkisstjórn og Alþingi að standa vörð um öryggi og sjálfstæði íslensku þjóðarinnar með því að treysta samstarfið innan Atlantshafsbandalagsins, en leggja á hilluna ótímabær áform um uppsögn varnarsamningsins við Bandaríkin og brottvísun varnarliðsins.“
Ekki er hægt að bera undirskriftasöfnun Varins lands saman við söfnun áskorana á forseta Íslands að samþykkja ekki ríkisábyrgð á Icesave, þó ekki væri nema þess eðlismunar sem er á því hvernig staðið er að söfnun undirskrifta. Árið 1974 var gengið á milli manna og víða lágu listar frammi í verslunum og fólk skrifaði eigin hendi undir. InDefence nýtir sér hins vegar internetið og keyrir síðan nöfnin saman við þjóðskrá.
Nú þegar hafa yfir 60 þúsund skrifað undir hjá InDefence.
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.