amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 31. júlí 2010 - 08:31
 
Frétt birtist 10. desember 2009 klukkan 07:33

Um 70% landsmanna vilja að forsetinn synji Icesave-lögum

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Viðskiptablaðið

Um 70% landsmanna vilja að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands synji staðfestingu á væntanlegum lögum um ríkisábyrgð á Icesave-reikningum Landsbankans. Frumvarp þessa efnis var afgreitt úr annarri umferð á Alþingi í vikunni eftir miklar umræður. Fjárlaganefnd er nú með málið til meðferðar.

Þetta er niðurstaða könnunar sem MMR vann fyrir Viðskiptablaðið. Þá telja 61,4% að breytingarnar sem gerðar voru á fyrirvörunum við ríkisábyrgðina vegna Icesave, frá því að frumvarp þess efnis var fyrst samþykkt á Alþingi, hafi verið til hins verra fyrir Ísland. Í frétt Viðskiptablaðsins segir a'ð um 13% telja þær hafa verið til hins betra en rúmlega fjórðungur

taldi breytingarnar fela í sér óbreytta stöðu fyrir Ísland.

Stuðningur við það viðhorf að ekki eigi að synja lögum staðfestingar eykst eftir því sem menntun svarenda í könnunni er meiri. Um 46,5% þeirra sem eru með háskólapróf telja

að staðfesta eigi lögin. Mestur er stuðningur við það, að Ólafur Ragnar synji ekki lögunum staðfestingar, meðal stjórnenda í atvinnulífinu og embættismanna, eða 49 prósent.

Viðskiptablaðið bendir á að það sama sé ekki hægt að segja um viðhorf stjórnenda og embættismanna til þess hvort breytingarnar, sem gerðar voru á fyrirvörum Alþingis vegna Icesave, hafi verið til hins betra fyrir Ísland:

„Um 66 prósent þeirra telja að breytingarnar hafi verið til hins verra á meðan meðaltalið er 61,4 prósent, eins og áður sagði. Aðeins tveir hópar eru jafn afgerandi í áliti sínu um að fyrirvararnir hafi verið til hins verra, en það eru bændur og sjómenn annars vegar og iðnarðarmenn hins vegar. En 68,5 prósent bænda og sjómanna og 69,5 prósent iðnaðarmanna telja breytingarnar á fyrirvörunum til hins verra fyrir Ísland.“

Svarendur í könnuninni voru 924 einstaklingar á aldrinum 18-67 ára og voru þeir valdir handhófskennt úr hópi álitsgjafa MMR, segir Viðskiptablaðið sem kom út í morgun.

Tengt efni

 
Fleiri fréttir

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

Capacent vinnur verkefni fyrir Alþjóða­bankann

Fjármögnun á vörudreifingu eða Supply Chain Financing (SCF) getur verið heppilegur stuðningur við framleiðendur í þróunarríkjum sem vilja koma afurðum sínum á alþjóðlegan markað. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun sem Capacent hefur unnið fyrir International Finance Corporation, sem er sú eining Alþjóða­bankans, eða World Bank Group í Washington, er sinnir stuðningi við einka­fyrirtæki í þróunarríkjum.

 
 
©2010 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX