

Yfirlýsing vegna tölvupóstsamskipta Mark Flanagan, fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Indriða H. Þorlákssonar, þáverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, þann 13. og 14. Þingmenn Hreyfingarinnar fordæma þau vinnubrögð sem tölvupóstsamskipti Indriða H. Þorlákssonar, þáverandi ráðuneytisstjóra og Mark Flanagan, fulltrúa AGS, eru til vitnis um og skora á þá sem ábyrgð bera í málinu að íhuga sína stöðu.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem þingmennirnir hafa sent frá sér.
Nú liggur fyrir að sú ákvörðun var tekin af hálfu stjórnvalda að halda mikilvægum upplýsingum um stöðu Icesave málsins frá opinberri umræðu í aðdraganda síðustu kosninga. Slíktur blekkingaleikur er með öllu óásættanlegur, ber vott um vantraust og vanvirðingu stjórnarflokkanna í garð kjósenda og vegur að grunnstoðum lýðræðisins. Núverandi stjórnarmeirihluti Samfylkingar og VG er því kosinn á fölskum forsendum og í eðlilegu lýðræðisríki, uppvís að þessu, myndi slíkur meirihluti segja af sér. Minnihlutastjórn Samfylkingar og VG fór jafnframt algerlega á bak við Framsóknarflokkinn sem varði þá stjórn falli, meðal annars að því tilskyldu að vera upplýstur um stöðu mála vegna Icesave.
Tölvupóstsamskiptin staðfesta að Bretar og Hollendingar hafa beitt AGS fyrir sig í Icesave deilunni um langa hríð og gagnrýna má þá einfeldni bréfritara að biðja starfsmenn AGS um að tala máli sínu við bresk og hollensk stjórnvöld sem voru á sama tíma sem stórir hluthafar AGS að misnota sjóðinn til að þvinga fram vilja sinn varðandi Icesave. Það er margt sem fram kemur í bréfinu sem útskýrir af hverju sá samningur sem borinn var fyrir þing og þjóð var eins slælega unninn og raun bar vitni.
Beiðni þáverandi ráðuneytisstjóra, sem nú er aðalráðgjafi fjármálaráðherra, um að fulltrúi AGS sendi tölvupóst um málið á einkanetfang sitt utan tölvukerfis stjórnarráðsins stangast auk þess á við ákvæði í lögum og reglum um skjalavörslu ríkisins.
Þingmenn Hreyfingarinnar fordæma þau vinnubrögð sem tölvupóstsamskiptin eru til vitnis um og skora á þá sem ábyrgð bera í málinu að íhuga sína stöðu.
Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum
Sífellt harðari gjaldeyrisreglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.
Sjálfstæðisflokkurinn í mikilli uppsveiflu
Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...
Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlitsstofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppniseftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.
Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi
Um kl., fjögur í nótt handtók lögreglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.
Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás
Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lögreglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar.
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“
Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.