amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Mánudagurinn 20. maí 2013 - 02:06
 
Frétt birtist 29. nóvember 2009 klukkan 01:03

Fallið frá áformum um skerðingu fæðingarorlofs

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Pawel Loj
Fallið hefur verið frá áformum um að skerða greiðslur til foreldra í fæðingarorlofi.

Fallið hefur verið frá áformum um að skerða greiðslur til foreldra í fæðingarorlofi. Samið hefur verið frumvarp um þetta. Í staðinn verður foreldrum gert að geyma einn mánuð orlofsins þar til síðar, að því er Ríkisútvarpið greinir frá.

Þar segir enn fremur:

„Gagnrýnt hefur verið að greiðslur í fæðingarorlofi verði skertar nú strax um áramótin en að sjómenn fái hátt í fimm ára aðlögunartíma.

Lilja Mósesdóttir, varaformaður efnahags- og skattanefndar, segir aðallega talað um að það sé verið að skekkja samkeppnisstöðu atvinnugreina því ríkið sé með sjómannaafslætti að greiða niður launakostnað útgerðarinnar.

En er ekki samt verið að mismuna fólki því margir verði fyrir auknum sköttum, beinum og óbeinum, en fái enga aðlögun?

,,Reyndar tel ég að það hafi verið gengið ansi langt í því að reyna að taka af fólki í nokkrum þrepum. Ég vil meðal annars nefna að við erum að skoða hvort við getum ekki farið í niðurskurðinn á fæðingarorlofinu í fleiri skrefum en við höfum áður rætt.“ Jafnvel komi til greina að fólk fái að' taka fæðingarorlof út á lengra tímabili en áður hafi verið leyft. Þannig verði dregið úr útgjöldum ríkisisn á næsta ári.

Þingflokkar ríkisstjórnarinnar hafa fallist á þessi áform varðandi fæðingarorlofið. Lilja býst við því að alþingismenn samþykki frumvarp um afnám sjómannaafsláttarins.

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður félags-og tryggingamálanefndar, staðfestir að nú liggi fyrir frumvarp þar sem gert sé ráð fyrir óbreyttum fjárhæðum vegna fæðingarorlofs,, nema að einn mánuður orlofs frestast.„

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX