amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 4. febrúar 2012 - 16:04
 
Frétt birtist 31. október 2009 klukkan 19:30

Mikill meirihluti Íslendinga treystir ekki AGS

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Guillaume Paumier
Dominique Strauss-Kahn, forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn nýtur lítils trausts meðal Íslendinga. Um 71% segjast bera lítið traust til sjóðsins og aðeins 6% segjast bera til hans traust. Þetta kemur fram í þjóðarpúlsi Gallup. Evrópusambandið er einnig umdeilt en aðeins 25% segjast bera traust til þess.

Íslendingar bera næst minnst traust til Evrópusambandsins (ESB). Rúm 44% bera lítið traust til ESB, 30% bera hvorki mikið né lítið traust til ESB en fjórðungur ber mikið traust til ESB. Íbúar landsbyggðarinnar bera minna traust til ESB en íbúar höfuðborgarsvæðisins.

Kjósendur Samfylkingarinnar bera mest traust til ESB en alls segjast 65% þeirra bera mikið traust til þess. Kjósendur annarra flokka en fjórflokksins bera hins vegar minnst traust til ESB.

Þegar kom að því að meta Atlantshafsbandalagið (NATO) sögðust 30% landsmanna bera mikið traust til þess. Rúm 42% bera hvorki mikið né lítið traust til NATO og 28% lítið traust. Kjósendur Sjálfstæðisflokksins bera mest traust til NATO en kjósendur Vinstri grænna minnst traust.

Um 46% Íslendinga bera mikið traust til Norðurlandaráðs og 39% hvorki mikið né lítið traust. Rúmlega 14% segjast hins vegar bera lítið traust til Norðurlandaráðs. Kjósendur Samfylkingarinnar bera mest traust til Norðurlandaráðs en kjósendur annarra flokka en fjórflokksins minnst. Sú alþjóðastofnun sem Íslendingar bera mest traust til eru Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) en meirihluti aðspurðra, 58%, ber mikið traust til þeirra. Um 30% bera hvorki mikið né lítið traust til SÞ en 12% lítið traust.

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX