amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 31. júlí 2010 - 08:32
 
Frétt birtist 24. október 2009 klukkan 13:28

Forkastanleg vinnubrögð utanríkis­ráðherra og utanríkis­ráðuneytis í ESB-málinu

- segir Björn Bjarnason á fundi sjálfstæðis­manna í Kópavogi.

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra.

Vinnubrögð utanríkisráðherra og ráðuneytis hans við meðferð ESB-málsins eru forkastanleg, sagði Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, á fundi sjálfstæðismanna í Kópavogi að morgni laugardags 24. október, en Björn ræddi stöðuna í aðildarviðræðunum í framsöguræðu og svaraði síðan fjölda fyrirspurna fundarmanna.

Björn vitnaði til þess, að í ályktun Alþingis frá 16. júlí væri setning um aðildarviðræður við Evrópusambandið (ESB) frá meirihluta utanríkismálanefndar, um að við undirbúning viðræðna og skipulag þeirra skyldi ríkisstjórnin fylgja þeim sjónarmiðum um verklag og meginhagsmuni, sem meirihlutinn kynnti í áliti sínu. Í álitinu væri meðal annars tekið fram, að skipa skyldi samninganefnd og hópa til að halda utan um samningaviðræður, hver á sínu sviði, þar á meðal til að undirbúa svör við spurningum sambandsins.

Þetta hefur verið haft að engu, sagði Björn, hinn 22. október hefði utanríkisráðuneytið sent frá sér fréttatilkynningu um, að svörum Íslands hefði verið skilað. Enginn samninganefnd hefði hins vegar verið skipuð. Þá segði í sömu tilkynningu, að samráð hefði verið haft við Bændasamtök Íslands. Samtökin hefðu á hinn bóginn sent frá sér tilkynningu um, að utanríkisráðuneytið færi með rangt mál, því að ofsagt væri að Bændasamtök Íslands hefðu farið yfir svör landbúnaðarsviðs spurningalistans.

Í tilkynningu utanríkisráðuneytisins segði, að svörin við 2500 spurningum á 2600 blaðsíðum auk fylgiskjala, samtals 8870 síður, væru staðreyndalýsingar en lytu ekki að samningsmarkmiðum Íslands. Dró Björn í efa, að þetta væri rétt lýsing á efni skjalanna og vitnaði til dæmis til þess, sem segði um afstöðu Íslands til sameiginlegrar stefnu ESB í utanríkis- og varnarmálum, þar sem fram kæmi að Ísland myndi staðfastlega, að öllu leyti og á virkan hátt taka þátt í framkvæmd stefnunnar, eins og hún væri sett fram í stofnsáttmála ESB. Björn spurði: Er ekki verið að móta stefnu með þessu svari? Hver hefur mótað þá stefnu? Hvar hefur hún verið rædd?

Hann sagði, að ekki væri nóg með að utanríkisráðuneytið segði rangt frá því, hvernig að gerð svaranna væri staðið, efni þeirra væri einnig kynnt á rangan hátt í tilkynningu ráðuneytisins. Þá sagðist Björn vita, að aðstoðarmaður utanríkisráðherra hefði af þótta fundið að því við Bændasamtökin, að þau skýrðu frá hinu rétta í málinu, þegar þau mótmæltu frétt ráðuneytisins.

Björn vakti máls á því, að í Morgunblaðinu dags. 25. október væri viðtal við Aðalstein Árna Baldursson, formann stéttarfélagsins Framsýnar á Húsavík, sem ýtt hefði verið til hliðar innan Stafsgreinasambandsins. Aðalsteinn segðist hafa unnið sér það til óhelgis, að gera athugasemd við hinn gríðarlega heilaþvott innan verkalýðshreyfingarinnar varðandi Evrópusambandið. Hann vildi skoða málið frá öllum hliðum, en forvígismenn hreyfingarinnar vildu keyra málið áfram án umræðu, enda vildu þeir Ísland nánast skilyrðislaust inn í sambandið.

Sagði Björn, að Samfylkingin, utanríkisráðherra og utanríkisráðuneytið færu einmitt fram á þann hátt, sem Aðalsteinn lýsti, eftir að grænt ljós var gefið á aðildarviðræður 16. júlí. Það væri pukrast með málið og það unnið með hraði, án þess að textar væru þýddir á íslensku, síðan yrði sagt, að þjóðin stæði frammi fyrir orðnum hlut. Kannski yrði því bætt við, að óþarft yrði að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu, ósvífnin væri á svo háu stigi og áhuginn svo yfirþyrmandi á að þröngva þjóðinni í Evrópusambandið, enda væri utanríkisráðuneytið greinilega gengið í ESB eins og forysta verkalýðshreyfingarinnar.

 
Fleiri fréttir

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

Capacent vinnur verkefni fyrir Alþjóða­bankann

Fjármögnun á vörudreifingu eða Supply Chain Financing (SCF) getur verið heppilegur stuðningur við framleiðendur í þróunarríkjum sem vilja koma afurðum sínum á alþjóðlegan markað. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun sem Capacent hefur unnið fyrir International Finance Corporation, sem er sú eining Alþjóða­bankans, eða World Bank Group í Washington, er sinnir stuðningi við einka­fyrirtæki í þróunarríkjum.

 
 
©2010 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX