Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Ómari R. Valdimarssyni tókst að fá samtal við Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á Bloomberg-fjármálafréttaveituna og var það sett inn á vefsíðu veitunnar að kvöldi 28. september. Þar segir Jóhanna meðal annars:
„Við vonumst enn til að áætlun sjóðsins fyrir Ísland verði endurskoðuð í október. Hins vegar er ljóst að AGS vill sjá lausn í Icesave-málinu áður en endurskoðun fyrir Ísland fer fram...Lausn deilunnar undir skilyrðum sem Alþingi setti hefur tekið lengri tíma og verið erfiðari en við héldum. Við búumst við formlegum svörum frá Hollandi og Bretlandi við skilyrðunum og hvernig við getum sameiginlega tekið næstu skref bráðlega….Lausn sem þvingar harðræði upp á Ísland og Íslendinga er ekki lausn sem ég sætti mig við….Hins vegar græðir enginn á því að við tökum á okkur þyngri byrðar en við ráðum við. Sú tenging sem menn setja milli lausnar Icesave-málsins og áætlunar AGS er að mínu mati óheppileg, svo ekki sé dýpra í árinni tekið…Ég hefði áhyggjur af málinu ef það þyrfti að fara aftur fyrir þingið. Augljóslega kallar það á meirihlutaafgreiðslu stjórnarinnar þar sem við getum ekki treyst á stjórnarandstöðuna.“
Smáfuglarnir fagna því, að Jóhanna fús til að tjá sig um stöðu Íslands gagnvart Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) og ICESAVE-löndunum á alþjóðavettvangi og óskar Ómari R. Valdimarssyni til hamingju með að hafa fengið Jóhönnu til að ræða við sig á íslensku.
Margar spurningar vöknuðu hins vegar í huga smáfuglanna, þegar þeir lásu svör Jóhönnu.
Hvað taldi Jóhanna líklegt, að Bretar og Hollendingar þyrftu langan tíma til að svara? Hverju áttu þeir að svara að ósk ríkisstjórnar Íslands og í hvaða formi?
Jóhanna talar um að hún sætti sig ekki við „lausn sem þvingar harðræði upp á Ísland“. – Var þetta ekki einmitt lausnin, sem Jóhanna lagði fyrir þingflokk Samfylkingarinnar í byrjun júní og þingflokkurinn samþykkti nær umræðulaust? Hétu þau Jóhanna og Steingrímur J. ekki viðsemjendum sínum að fá þessa lausn samþykkta á Alþingi? Hvenær snerist Jóhönnu hugur í málinu?
Hvers vegna hefur Jóhanna áhyggjur af því, að leggja málið að nýju fyrir Alþingi, ef hún telur sig geta fengið það afgreitt með „meirihlutaafgreiðslu stjórnarinnar“, það er af þingflokkum ríkisstjórnarinnar? Eða veit Jóhanna sem er, að hún getur ekki gengið að neinum meirihluta á þingi vísum?
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.