amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 07:54
 
Frétt birtist 29. september 2009 klukkan 08:56

Höfum ekki efni á að bíða eftir endurskoðun AGS

 
 
 


Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Sigurður Bogi
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að Ísland hafi ekki efni á því að bíða eftir endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins [AGS] á efnahagsáætluninni né afgreiðslu sjóðsins á næsta hluta lánsins sem sjóðurinn veitti Íslandi.

Þetta kemur fram í viðtali Bloomberg fréttastofunnar við Jóhönnu Sigurðardóttur. Þar segist Jóhanna enn vonast til að endurskoðun AGS verði í október:

Það er hins vegar ljóst að AGS vill sjá lausn á Icesave-málinu áður en endurskoðun fer fram.„

Að sögn Jóhönnu hefur það reynst erfiðara en reiknað var með að ná niðurstöðu í Icesave með þeim fyrirvörum sem Alþingi samþykkti vegna ríkisábyrgðar. Hún segist gera ráð fyrir að bresk og hollensk stjórnvöld muni veita formleg svör innan skamms:

„Þar sem öll þessi mál tengjast er mikilvægt að við náum samkomulagi sem allir geta sætt sig við, Bretland, Holland sem og Ísland.“

Jóhanna segir það mikilvægt að Bretar og Hollendingar skynji að Íslendingar vilji standa við sínar skuldbindingar, en það sé engum til góðs að Íslendingar taki á sig byrðar sem þeir geta ekki staðið undir. Þá hefur hún áhyggjur af því að Icesave þurfi að koma aftur til kasta Alþingis. Ríkisstjórnin geti ekki treyst á stjórnarandstöðuna og þurfi að reiða sig á eigin meirihluta.

Bloomberg: Getum ekki beðið lengur

 
Fleiri fréttir

Leifsstöð verður eftirlitsvettvangur Seðlabanka Íslands - leitað að evrum

Sífellt harðari gjaldeyris­reglur færast nær hverjum einstaklingi á Íslandi. Yfirvöldin óttast svo að einhverjum takist að plata þau með því að ná í of mikinn gjaldeyri vegna utanferða að þau nýta sér Leifsstöð til þess að yfirheyra fólk og leita að evrum eða dollurum í töskum þess og fatnaði.

Sjálfstæðis­flokkurinn í mikilli uppsveiflu

Sjálfstæðis­flokkurinn er í mikilli uppsveiflu samkvæmt könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vef­svæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar. Vinstri grænir styrkja einnig stöðu sína. Samfylkingin er hins vegar í vanda þar sem fylgið minnkar verulega frá því í kosningum síðasta voru. Samkvæmt könnun Frjá...

Gylfi: Meðal verkefna að finna út hvort rangar upplýsingar voru gefnar

Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að komast til botns í því hvort erlendar eftirlits­stofnanir fengu rangar eða misvísandi upplýsingar frá bönkunum, innlendum eftirlitsaðilum eða öðrum embættismönnum mánuðina fyrir hrunið. Það er von okkar að skýrsla Rannsóknar­nefndar Alþingis muni leiða þetta í ljós, segir Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra.

Héraðsdómur felldi niður 130 milljóna sekt af Icelandair

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi niður 130 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Icelandair en Samkeppnis­eftirlitið hafði áður úrskurðað að félagið skyldi greiða sektina fyrir brot á samkeppnislögum. Upplýsinga­fulltrúi Icelandair segir dóminn fagnaðarefni.

Játar innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi

Um kl., fjögur í nótt handtók lög­reglan ungan mann þar sem hann var að fara í ólæsta bíla í Tjarnarhverfi á Selfossi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og hann játað innbrot og þjófnað úr fjölda bíla á Selfossi undanfarna mánuði eða allt frá því nóvemer síðastliðinn.

Eyjar: Hávaði í heimahúsum og ein líkamsárás

Það var frekar rólegt hjá lög­reglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem komu á borð lög­reglu. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum og ein líkamsárás var tilkynnt til lög­reglunnar.

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir“

Eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

For­stjóraskipti hjá Auðhumlu

Nú um mánaðamótin urðu for­stjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnu­félagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, for­stjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður for­stjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX