| « 26. nóvember |
■ 27. nóvember 2010 |
» 28. nóvember |
Jóhanna kaus! Stjórnlagaþingi borgið
Smáfuglarnir lesa á mbl.is síðdegis laugardaginn 27. nóvember, þegar aðeins 18% Reykvíkinga höfðu kosið til stjórnlagaþings: "Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra kaus í Hagaskóla í dag. Hún gætti að jöfnu kynjahlutfalli í sinni kosningunni og sagði mikið úrval af góðu fólki í framboði. ...
Leiðrétt: Alnafna Þóru Kristínar fékk styrkinn
Smáfuglarnir sögðu frá því fyrir helgi að líklega væri komin fram skýring á þögn Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur í nokkrum stórum málum er varða blaðamenn og fjölmiðla.
Heilsíður í báðum blöðum - standa vörð um stjórnarskrána
Smáfuglarnir flettu blöðunum í morgun og tóku eftir því að sá hópur fólks sem vill verja stjórnarskrána fyrir ágangi hefur sameinast um heilsíður í báðum blöðum. Frambjóðendur eru þeir sömu og á netsendingu sem smáfuglunum barst í gærkvöldi og sagt var frá. Ekki verður betur séð en að sá listi sem birtist í blöðunum sé listi meðalhófsins.
Endurfjármögnun Marels gengur þvert á áróður Steingríms J.
Forsíðufrétt Morgunblaðsins laugardaginn 27. nóvember um að ekki hafi verið vandamál að endurfjármagna Marel þrátt fyrir óleyst Icesave-mál gengur þvert á áróður Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra. Hann bauð sér á fund Viðskiptaráðs á dögunum til að flytja mönnum þann boðskap að Icesave ...