| « 17. desember |
■ 18. desember 2009 |
» 19. desember |
Segir skuldbindingu vegna Icesave geta lækkað um tugi milljarða
Skuldbinding ríkisins vegna Icesave gæti lækkað um tugi milljarða segir viðskiptaráðherra, í frétt í Ríkisútvarpinu, náist samningar við Seðlabankann í Lúxemborg um kaup á veðum sem Landsbankinn lagði þar inn í fyrra.
Ólíklegt talið að samningur náist í Kaupmannahöfn
Síðustu fréttir frá Kaupmannahöfn herma að Barack Obama Bandaríkjaforseti og Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, ætli að halda enn einn fund í Bella Center ráðstefnumiðstöðinni. Danska sjónvarpsstöðin TV2 segir að á fundinum verði það formlega tilkynnt að ekki hafi náðst neinn samningur. Rússlandsforseti er á heimleið.
Björn Gíslason stefnir á 5. sætið
Björn Gíslason, varaborgarfulltrúi og slökkviliðsmaður, sækist eftir 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins vegna komandi borgarstjórnarkosninga. Prófkjörið fer fram 23. janúar næstkomandi.
Síminn: Sektin kemur á óvart - málinu verður áfrýjað
Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins að sekta Símann um 150 milljónir króna kemur forráðamönnum fyrirtækisins á óvart, að því er segir í yfirlýsingu. Síminn ætlar að áfrýja málinu til áfrýjunarnefndar.
Íslandsbanki lækkar vexti frá og með 21. desember næstkomandi á inn- og útlánum í kjölfarið á lækkun stýrivaxta Seðlabankans nýverið. Þetta hefur í för með sér að algengustu yfirdráttarvextir lækka um 0,5% en vextir á óverðtryggðum innlánum lækka á sama tíma um 0,25%
„Jólin nálgast, heimilin blæða og fólkið mótmælir“
Hagsmunasamtök heimilanna og Nýtt Ísland vilja enn á ný boða til kröfufundar á Austurvelli næstkomandi laugardag kl. 15 til að mótmæla tregðu stjórnvalda og aðgerðarleysi varðandi lánakjör heimilanna.
Marta Guðjónsdóttir formaður Varðar stefnir á 3. sætið
Marta Guðjónsdóttir, formaður Varðar fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík og varaborgarfulltrúi, hefur ákveðið að gefa kost á sér í þriðja sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.
Saga Capital með viðskiptqavakt á hlutabréfum Eik banka
Eik banki P/F hefur samið við Saga Capital Fjárfestingarbanka um að bankinn annist viðskiptavakt með hlutabréf Eik banka fyrir eigin reikning Saga Capital.
Héraðsdómur fellst að hluta á kröfu Gaums vegna söluhagnaðar af Bónus
Héraðsdómur hefur fallist á kröfu Gaums, eignarhaldsfélags um að úrskurður yfirskattanefndar verði felldur úr gildi að hluta vegna sölu á eignarhluta Gaums í Bónus árið 1998. Hérðasdómur féllst ekki á að ekki ætti að bókfæra 1,2 milljarða vegna viðskipta með hluti í Arcadia.
Bandaríski bílarisinn General Motors hefur ákveðið að loka sænsku Saab-bílaverksmiðjunum eftir að söluviðræður við hollenska fyrirtækið Spyker runnu út í sandinn. Síðasti Saabinn verður væntanlega framleiddur í mars.
Samkeppniseftirlitið leggur 150 milljóna króna sekt á Símann
Samkeppniseftirlitið hefur í ákvörðun sinni í dag komist að þeirri niðurstöðu að Síminn hafi gerst brotlegur við skilyrði sem eftirlitið setti honum í fyrri ákvörðun og þannig raskað með alvarlegum hætti samkeppni frá minni keppinautum. Leggur Samkeppniseftirlitið 150 milljóna króna sekt á Símann.
Við samruna Mjólku og KS hverfur aðhald og við tekur einokun
Vandséð er hvaða hvata afurðastöð í mjólkuriðnaði ætti að hafa til þess að bjóða bændum hærra verð en lágmarksverð, eða neytendum samkeppnishæft vöruverð, þegar enginn er keppinauturinn lengur. Staðreyndin er sú að Mjólka veitti samkeppnislegt aðhald sem leiddi af sér lægra verð og aukið val fyrir neytendur. Við samruna Mjólku og KS hverfur það aðhald og við tekur einokun, segir forstjóri Samkeppniseftirlitsins.
Tap evrópskra banka mun meira en ætlað var
Evrópski seðlabankinn reiknar með að tap banka á evrusvæðinu verði mun meira en áður var ætlað. Nú gerir bankinn ráð fyrir að tap bankanna muni samtals nema 553 milljörðum evra.
45 kaupsamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu
Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 11. desember til og með 17. desember 2009 var 45. Þar af var 31 samningur um eignir í fjölbýli, 9 samningar um sérbýli og 5 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 4.603 milljónir króna og meðalupphæð á samning 102,3 milljónir króna.
Bandaríkin og Kína á hljóðskrafi í Kaupmannahöfn
Hátt settur bandarískur embættismaður segir að beinar viðræður Barack Obama Bandaríkjaforseta og Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, á loftslagsráðstefnunni í Kína hafi aukið vonir manna um að samkomulag náist um viðameiri loftslagssáttmála en áður var reiknað með.
Sjö sækja um skólameistaraembætti
Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Framhaldsskólann við utanverðan Eyjafjörð rann út þriðjudaginn 15. desember sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust sjö umsóknir um stöðuna, frá fjórum konum og þremur körlum.
Iðnaðarnefnd vill upplýsingar um eignarhald á Verne Holding
Iðnaðarnefnd Alþingis fjallaði í morgun um frumvarp iðnaðarráðherra um byggingu gagnavers í Reykjanesbæ á vegum Vern Holding. Í frumvarpinu er meðal annars gert ráð fyrir ákveðnum ívilnunum vegna skatta og opinberra gjalda.
Nokkur árangur í peningastjórnun með harkalegum meðulum
Nokkuð hefur áunnist á fyrsta starfsári peningastefnunefndar í að ná markmiði peningastjórnunarinnar á árinu, segir Greining Íslandsbanka. Bæði hefur náðst að stuðla að stöðugu gengi krónunnar og draga úr verðbólgunni. Meðalið hefur hins vegar verið kostnaðarsamt og harkalegt - gjaldeyrishöft, háir vextir og inngrip á gjaldeyrismarkaði.
Banaslys varð á Hafnarfjarðarvegi á móts við Arnarnesbrú um kl. 10:00 í morgun. Lentu þar saman tvö ökutæki. Ökumaður annarrar bifreiðarinnar og ökumaður og farþegi úr hinni bifreiðinni voru fluttir mikið slasaðir af vettvangi.
Ár framkvæmda og uppbyggingar í Vestmannaeyjum
Nú þegar harðnar á dalnum og kreppir að í atvinnulífinu er rétti tíminn fyrir opinbera aðila að framkvæmda. Það er því ljóst að árið 2010 verður ár framkvæmda og uppbyggingar í Vestmannaeyjum, segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, en fjárhagsáætlun fyrir næsta ár var samþykkt í gær.
Alvarlegt umferðarslys á Hafnarfjarðarvegi
Mjög alvarlegt umferðarslys varð á Hafnarfjarðarvegi um tíuleytið í morgun þegar tvær bifreiðar skullu saman við Arnarnesbrúna en mikil hálka er á veginum.
Breytingar á ættleiðingarreglugerð taka gildi
Breytingar á reglugerð um ættleiðingar taka gildi í dag, 18. desember 2009. Miða þær að því að rýmka reglur um ættleiðingar vegna lengri biðtíma eftir börnum. Þannig verði komið til móts við óskir einstaklinga sem vilja ættleiða börn erlendis frá.
SI: Viðskiptavinum banka gert að skrifa upp á óútfylltan tékka
Skilmálar bankans eru algerlega einhliða og bankinn tekur sér öll völd í hendur. Hvernig er hægt að ætlast til þess að fyrirtæki skrifi upp á óútfylltan tékka af þessu tagi? Svo spyr framkvæmdastóri SI og bendir á skilmála þar sem banki áskilur sér einhliða rétt til endurskoðunar á vaxtakjörum láns til hækkunar og til breytingar á myntsamsetningu, m.a. rétt til breytingar í íslenskar krónur.
Hægt að athuga hvort kennitala er skráð á undirskriftalistann
Sú breyting hefur verið gerð á vefsíðunni http://indefence.is, sem safnar undirskriftum til áskorunar á forseta Íslands, að nú geta allir athugað sjálfir hvort kennitala þeirra er skráð á undirskriftalistann.
Lok loftlagsráðstefnu - Obama kominn, þá geta hlutirnir farið að gerast
Í morgunsárið er Barack Obama Bandaríkjaforseti kominn til Kaupmannahafnar á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna og þá geta hlutirnir farið að gerast, segir Pétur Reimarsson á síðu Samtaka atvinnulífsins.
Útlendingar veiddu 52 þúsund tonn við Ísland
Afli erlendra ríkja við Ísland var tæp 52 þúsund tonn árið 2008 sem er töluverður samdráttur á milli ára en árið 2007 var aflinn rúm 90 þúsund tonn. Norðmenn og Færeyingar stunduðu aðallega veiðar hér við land á síðasta ári og uppistaðan í aflanum var loðna.
Benti rannsakendum á að kynna sér fundargerðir
Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir í yfirlýsingu að hann hafi bent rannsakendum á að kynna sér fundargerðir samráðshóps Seðlabankas um fjármálastöðugleika. Í Fréttablaðinu í dag er því haldið fram að fundargerðirnar hafi uppgötvast eftir að Jónas lét af starfi.
Reikna með 25 milljóna afgangi hjá Kópavogi
Í tillögu að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2010, sem lögð er fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Kópavogs í gær, er gert ráð fyrir 25 milljóna króna rekstrarafgangi. Heildartekjur Kópavogsbæjar árið 2010 eru áætlaðar rúmir 18 milljarðar króna.
Eigið fé Hafnarfjarðar neikvætt um 760 milljónir króna
Eigið fé Hafnarfjarðarbæjar er neikvætt um 760 milljónir króna. Fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir því að það verði neikvætt upp á 360 milljónir króna árið 2010. Samanlagðar eignir A- og B-hluta bæjarsjóðs eru 37,5 milljarðar króna, en skuldir nema í ár 38,2 milljörðum. Á næsta ári er gert ráð fyrir því að eignir nemi 36,6 milljörðum en skuldir 37 milljörðum króna.
Þingmenn fara framhjá reykingabanni
Það tekst misjafnlega vel til við að framfylgja lögum og reglum. Meira að segja á Alþingi virðist vera erfitt að fá einhverja þingmenn til að virða reykingabann. Smáfuglarnir heyra að borið hafi á því að „sumir þingmenn“ freistist til að fá sér smók á bannsvæðum.
Útúrsnúningur Jónasar og fimm-aura-brandari Hreinsmiðils.
Smáfuglarnir sjá, að hið sama gildir um Hreinsmiðilinn DV, Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóra, og Fréttablaðið, að allir leggjast þessir álitsgjafar á sveif með ríkisstjórninni vegna Icesave-afarkostanna og telja Íslandi fyrir bestu að ganga að þeim.
Jóhanna í Kaupmannahöfn – kannski vantar þar verkstjóra?
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra er nú komin til Kaupmannahafnar til að sitja loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Af fréttum undanfarna daga má ráða, að allt sé í upplausn á ráðstefnunni og líkurnar á að hún skili einhverri alvöru niðurstöðu fara þverrandi.
Fær „innmúraður og innvígður“ Samfylkingarmaður skattaundanþágur?
Fyrir þingi liggur frumvarp frá Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra um sérstök skattafríðindi fyrir gagnaver Verne Holding á Suðurnesjum. Mest hefur verið fjallað um aðkomu Björgólfs Thors Björgólfssonar að fyrirtækinu og er hún greinilega afar umdeild vegna viðskiptasögu hans. Minna hefur hins vegar verið fjallað um þátt Vilhjálms Þorsteinssonar, viðskiptafélaga Björgólfs í þessu verkefni og fleirum.