| « 12. desember |
■ 13. desember 2009 |
» 14. desember |
Ágúst Einarsson formaður Framtakssjóðs Íslands
Stjórn Framtakssjóðs kom saman til fyrsta fundar síns fyrir helgina og skipti með sér verkum. Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, var kjörinn formaður og Ragnar Önundarson, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna, var kjörinn varaformaður.
Eyjan: Rafræn kosning um Icesave-málið
Vefmiðillinn Eyjan hefur ákveðið að efna til þjóðarkosningar um Icesave-málið á netinu frá og með deginum í dag og fram á fimmtudag, 17. desember. Um er að ræða kosningu en ekki hefðbundna skoðanakönnun. Notast er við kerfið Íslendingaval þróað af Íslenskri erfðagreiningu. Kerfið tryggir öryggi og nafnleynd.
Stjórnarandstaðan í Svíþjóð næði naumum meirihluta
Færu kosningar fram í Svíþjóð nú fengi stjórnarandstaðan nauman meirihluta, að því er ný skoðanakönnun sýnir. Jafnaðarmenn vinna á en Hófsami hægriflokkurinn, flokkur Fredrik Reinfeldt forsætisráðherra, tapar að sama skapi.
Gagnrýna hægagang við rannsókn Air France-slyssins
Fjölskyldumeðlimir þeirra sem fórust með Airbus A330 þotu Air France sem steyptist í hafið úti fyrir Brasilíu fyrr á árinu gagnrýna rannsóknarnefndina sem fer með málið fyrir hægang. Þeir segja að ekkert hafi gerst í málinu frá því í júní og saka yfirvöld um að vita meira en þau segja. Skýrslu vegna slyssins er að vænta á fimmtudaginn.
Iðnaðarráðherra fái heimild til að semja um byggingu gagnavers
Lagt hefur verið fram stjórnarfrumvarp þar sem iðnaðarráðehrra verður veitt heimild til að semja við Verne Holdings ehf. og Verne Real Estate ehf. og eigendur þeirra, Teha Investments S.a.r.l. og Novator, um gagnaver í Reykjanesbæ. Ríkisstjórnin tryggir að tekjuskattur verði ekki hærri en 15% fyrstu fimm árin.
Hallinn verður 14,4 milljörðum meiri en fjárlagafrumvarpið gerði ráð fyrir
Halli á ríkissjóði verður 14,4 milljörðum króna meiri á komandi ári en fjárlagafrumvarp gerði ráð fyrir. Þetta kemur fram í nefndaráliti fjárlaganefndar. Hallinn verður því um 101,8 milljarðar króna í heild.
Bresk yfirvöld taka starfsemi Kaupþings til sérstakrar rannsóknar
Efnahagsbrotadeild Bretlands, (Serious Fraud Office, SFO) hefur hafið undirbúning að sakamálarannsókn á starfsemi Kaupþings. Frá þessu greinir breska dagblaðið The Daily Telegraph, sem segist hafa heimildir fyrir því að SFO muni tilkynna um rannsóknina í komandi viku.
Sum sex daga stríð eru fræg en önnur ekki. Það er eins og gengur. Í júní 1967var frægasta sex daga stríð sögunnar háð milli Ísrela og araba í Sýrlandi, Jórdaníu og Egyptalandi. Jóhannes Jónsson háði einnig sitt sex daga stríð.
2,8 milljónir króna úr ríkissjóði í sérstakt spákonuhof
Kannski er það tímanna tákn að ríkisstjórnin telji nauðsynlegt að leggja 2,8 milljónir króna í stofnkostnað á sérstöku spákonuhofi á Skagaströnd. Óvissa í íslenskum efnahagsmálum er þannig að þjónusta spámanna kann að vera nauðsynleg.