amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 22. maí 2013 - 08:47
 

Laugardagurinn 28. nóvember 2009

«
27. nóvember

28. nóvember 2009
»
29. nóvember
Fréttir

Áskoranir á Ólaf Ragnar nálgast 11 þúsund

Tæplega 11 þúsund manns hafa skrifað undir áskorun til forseta Íslands á vefsíðu InDefence hópsins. Þar er skorað á Ólaf Ragnar Grímsson að synja nýjum Icesave lögum staðfestingar. Undirskriftunum hefur fjölgað um meira en tvö þúsund í dag.

Gylfi: Beitti mér ekki fyrir frestun afgeiðslu mála Haga og 1998

Gylfi Magnússon efnahags- og viðskipta­ráðherra hafnar því að ráðuneyti hans hafi beitt sér fyrir því að að afgreiðslu mála Haga og 1998 yrði frestað af hálfu Arion banka, að því er fram kemur í tilkynningu hans.

Valgerður Sveins­dóttir í 3. sæti

Valgerður Sveins­dóttir sigraði með 66% gildra atkvæða í kosningu um 3. sæti á lista Framsóknar­flokksins í Reykjavík til borgar­stjórnar­kosninganna í vor. Hallur Magnússon hlaut 34% atkvæða.

Guðrún Valdimars­dóttir sigraði í kosningu um 2. sætið

Niðurstöður liggja fyrir í kosningu um 2. sæti á lista Framsóknar­flokksins í Reykjavík til borgar­stjórnar­kosninganna 29. maí 2010. Guðrún Valdimars­dóttir hlaut 59% greiddra atkvæða og Valgerður Sveins­dóttir og 41%.

Kosið aftur milli tveggja efstu í 2. sætið

Þar sem enginn frambjóðenda í 2. sæti á lista Framsóknar­flokksins í Reykjavík til borgar­stjórnar­kosninganna 29. maí 2010 fékk yfir 50% atkvæða þarf að fara fram önnur umferð milli tveggja efstu frambjóðenda, þeirra Guðrúnar Valdimarsdóttur og Valgerðar Sveinsdóttur.

Rúmlega níu þúsund hafa skorað á forsetann að synja Icesave

Ríflega 9000 manns hafa skrifað undir áskorun til forseta Íslands á vefsíðu InDefence hópsins. Þar er skorað á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að synja nýjum Icesave lögum staðfestingar.

ESB umsókn Íslands til umræðu á landsfundi Nei til EU í Noregi

Sendi­nefnd níu Íslendinga fór í gær til Noregs til að taka þátt í aðalfundi Nei til EU í Noregi, en það eru systur­samtök Heimssýnar. Á þriðja hundrað manns eru á landsfundinum. Stór hluti setningarræðu formanns Nei til EU var tileinkuð Íslandi. Í dag eru 15 ár liðin síðan Norðmenn höfnuðu ESB aðild í þjóðar­atkvæða­greiðslu.

Einar Skúlason nýr oddviti framsóknar­manna í Reykjavík

Einar Skúlason hlaut 298 atkvæði eða 62% gildra atkvæða í í kosningu um 1. sæti á lista Framsóknar­flokksins í Reykjavík til borgar­stjórnar­kosninganna 29. maí 2010.. Óskar Bergsson hlaut 182 atkvæði eða 38%. Einar tekur því við af Óskari sem leiðtogi flokksins í borgar­stjórn.

Benni frumsýnir tvo ofursportbíla frá Porsche

Tveir ofursportbílar frá Porsche verða frumsýndir hjá Bílabúð Benna í dag, laugardaginn 28. nóvember. Bílarnir sem um ræðir eru Porsche 911 GT3 og Porsche 911 Turbo. Þessar nýju útgáfur af bílunum hafa tekið miklum breytingum.

Hluti arð­greiðslna skattlagður eins og launatekjur

Verði frumvarp ríkis­stjórnar­innar um tekjuöflun ríkis­sjóðs að lögum verður litið á hluta arð­greiðslna einkahluta­félaga sem launatekjur og þær skattlagðar sem slíkar, að því er Morgunblaðið greinir frá í dag.

Fuglahvísl

Segjum það upphátt - ríkis­stjórnin er búin að vera

Páll Vilhjálmsson blaðamaður orðar það sem margir hugsa. Afrekaskrá ríkis­stjórnar­innar er fátækleg. „Ágreiningurinn er mikill í þingliðinu. Kannski er kominn tími til að hætta þessum leik og segja upphátt: Ríkis­stjórn Jóhönnu Sigurðar­dóttir er búin að vera,“ segir hann.

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX