| « 26. nóvember |
■ 27. nóvember 2009 |
» 28. nóvember |
Umframeftirspurn í hlutafjárútboði Marel
Stjórn Marel Food Systems hf. ákvað að taka tilboðum að upphæð 7 milljarðar króna, sem jafngildir 38 milljónum evra, eftir hlutafjárútboð á meðal fagfjárfesta sem lauk í gær. Umframeftirspurn var. Tekið var öllum tilboðum sem komu frá íslenskum lífeyrissjóðum og erlendum og innlendum fagfjárfestum.
Framsóknarmenn velja á lista í Reykjavík í dag
Kjörfundur framsóknarmanna í Reykjavík vegna borgarstjórnarkosninganna 29. maí 2010 er haldinn í dag, laugardaginn 28. nóvember, á Hótel Loftleiðum. Kjörfundurinn hófst kl. 10 og stendur fram eftir degi. Alls eru tuttugu frambjóðendur í kjöri.
Þrenn utanþingsviðskipti með skuldabréf í Marel fyrir 3,8 milljarða
Heildarvelta á skuldabréfamarkaði í dag nam 10,2 milljörðum króna. Þar af voru þrenn utanþingsviðskipti með skuldabréf í Marel fyrir samtals 3,8 milljarða króna.
Síðasti Pontiac bíllinn frá General Motors rann af færibandinu í verksmiðjunni í Orion Township í Michigan í fyrradag. Þar með er lokið 83 ára sögu þessa merka bíls í eigu GM en saga hans nær lengra aftur. Blómaskeið Pontiac var á sjötta og sjöunda áratug síðutu aldar þegar framleidd voru minnisverð tryllitæki, svokallaðir „vöðvabílar“, Firebird og GTO.
„Hækka þarf sjómannaafsláttinn umtalsvert“
„Hækka þarf sjómannaafsláttinn umtalsvert eða breyta honum þannig að hann verði sambærilegur við skattfrjálsar dagpeningagreiðslur til ríkisstarfsmanna og annarra launþega,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, um þær hugmyndir stjórnvalda að fella afsláttinn niður á fjórum árum.
Liðlega 11 milljarða tap á Orkuveitu Reykjavíkur
Orkuveita Reykjavíkur tapaði alls 11,3 milljörðum króna eftir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagn og afskriftir nam hins vegar 8,6 milljörðum.
Yfir sjö þúsund hafa skrifað undir áskorun til forseta
Nú hafa rúmlega 7000 Íslendingar ritað nafn sitt undir áskorun til forseta Íslands um að synja nýjum Icesave lögum staðfestingar, svo að sú efnahagslega byrði, sem ríkisábyrgðin leggur á íslenskan almenning og framtíðarkynslóðir þessa lands, verði borin undir íslensku þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Átta fyrirtæki hafa verið sektuð um 460 milljónir alls
Frá bankahruninu hefur Samkeppniseftirlitið sektað átta fyrirtæki fyrir brot á samkeppnislögum. Samanlagt nema sektirnar 460 milljónum króna. Þetta kemur fram í grein Páls Gunnars Pálssonar forstjóra Samkeppniseftirlitsins.
Stór sendinefnd frá Íslandi á aðalfundi „Nei til EU“ í Noregi
Sendinefnd níu Íslendinga fór til Noregs í morgun til að taka þátt í aðalfundi NEI TIL EU, en það eru systursamtök Heimssýnar á Íslandi sem berjast gegn aðild að ESB. Í sendinefndinni eru m.a. þrír þingmenn frá jafn mörgum flokkum.
Tap Spalar ehf. eftir skatta nam alls 129 milljónum króna á síðasta rekstrarári sem lauk 30. september síðastliðinn. Spölur á og rekur Hvalfjarðargöngin.
Guðmundur Franklín: Tær viðskiptasnilld
Þetta er svar við því sem snýr að mér í grein Jóhannesar Jónssonar sem kenndur er við Bónus, í Fréttablaðinu í morgun 27 nóvember 2009, segir Guðmundur Frankín Jónsson í tilkynningu. Guðmundur er fjárfestir í Þjóðarhag - hópi sem hafði hug á að gera tilboð í Haga en fékk ekki.
Fimm milljarða vikuvelta á fasteignamarkaði
Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 20. nóvember til og með 26. nóvember 2009 var 47. Þar af voru 32 samningar um eignir í fjölbýli, 11 samningar um sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 5.048 milljónir króna og meðalupphæð á samning 107,4 milljónir króna. Þetta er mun meiri velta en vikuna á undan.
9,3 milljónum úthlutað úr Samfélagssjóði Alcan
Úthlutað hefur verið úr Samfélagssjóði Alcan vegna þeirra styrkumsókna sem bárust sjóðnum frá maí síðastliðnum til og með október. Styrkveitingar að þessu sinni eru 29 að fjárhæð samtals kr. 9,3 milljónir króna. Alls bárust 70 umsóknir.
Hrein erlend staða þjóðarbúsins batnar
Ef litið er fram hjá áhrifum af efnahagsreikningi gömlu bankanna hefur mikil breyting orðið til batnaðar í erlendri stöðu þjóðarbúsins. Samkvæmt nýlega birtum tölum Seðlabankans var hrein erlend staða þjóðarbúsins við útlönd í septemberlok neikvæð um 5.739 milljarða króna og batnaði um 90 milljarða króna milli ársfjórðunga.
Áætlanir um bólusetningu vegna inflúensunnar raskast
Fyrirsjáanlegt er að gildandi áætlun um bólusetningu almennings gegn inflúensunni A(H1N1) raskast verulega vegna þess að minna berst til landsins af bóluefni en gert var ráð fyrir og afhending dregst. Mjög hefur dregið úr inflúensufaraldrinum hérlendis.
Þannig nauðlenti „Sully“ á Hudson-ánni – tölvugert myndband
Í nýju tölvugerðu myndbandi er hægt að upplifa nauðlendingu Airbus 320 þotu US Airlines á Hudson-ánni við New York 15. janúar síðastliðinn þar sem reyndi á áratugalanga reynslu og hæfni Chesley „Sully“ Sullenberger flugstjóra. Honum tókst að bjarga öllum sem um borð voru, 155 manns. Frá flugtaki til nauðlendingar liðu 6 mínútur. Með því má fylgjast hér - og raunverulegum upptökum úr flugstjórnarklefa og flugumferðarstjórnar.
Árangurslaus fundur strandríkja um makríl í Edinborg
Fundi strandríkja um stjórn makrílveiða á árinu 2010 var slitið í Edinborg í morgun án þess að niðurstaða næðist. Andrúmsloftið á fundinum var erfitt og markaðist af deilum Norðmanna og Evrópusambandsins um veiðirétt þeirra fyrrnefndu innan lögsögu ESB.
Óttast að Dúbaí verði fyrsti dómínókubburinn sem fellur í nýrri kreppuhrinu
Skuldir Dúbaí eru taldar nema um 60 milljörðum dollara. Það eru gríðarlegar skuldir smáríkis en kannski ekki risavaxnar í alþjóðlegu samhengi. Harkaleg viðbrögð hlutabréfamarkaða við ástandinu í Dúbaí valda engu að síður áhyggjum enda líta sumir svo á að fall Dúbaí gæti haft dómínóáhrif, fall þess væri þá fyrsti kubburinn í annarri umferð alþjóðakreppunnar.
Risafjárfestingar Volkswagen og Ford í Brasilíu
Þýsku bílaverksmiðjurnar Volkswagen munu fjárfesta verulega í Brasilíu næstu árin, þ.e. á árabilinu 2010 til 2014. Hið sama gildir um bandaríska bílarisann Ford. Búist er við metsölu bíla í Brasilíu, stærsta makaði Suður-Ameríku, í ár.
Vísitala framleiðsluverðs hækkar um 0,3%
Vísitala framleiðsluverðs í október 2009 var 187,0 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og hækkaði um 0,3% frá september 2009 samkvæmt útreikningum Hagstofunnar.
106 fyrirtæki gjaldþrota í október
Í október 2009 voru 106 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 78 fyrirtæki í október 2008, sem jafngildir tæplega 36% fjölgun milli ára. Alls hafa 747 fyrirtækið orðið gjaldþrota á árinu.
Á sjötta þúsund hafa undirritað áskorun til forseta vegna Icesave
Á innan við tveimur sólarhringjum hafa á sjötta þúsund manns undirritað áskorun til forseta Íslands um að undirrita ekki ný lög um Icesave-skuldir, ef frumvarp ríkisstjórnarinnar sem nú er til umræðu á þingi verður samþykkt.
Samráð um að svara ekki bréfum Jóhönnu Sigurðardóttur
Ritstjórar Morgunblaðsins telja það augljóst að forsætisráðherrar Bretlands og Hollands hafi haft samráð um að svara ekki bréfum Jóhönnu Sigurðardóttur til þeirra í þrjá mánuði þar sem meðal annars var óskað eftir fundi um Icesave-deiluna.
Er Mogginn neikvæður út í Haga vegna þess að þeir auglýsa ekki?
Jóhannes Jónsson gagnrýndir Morgunblaðið harðlega fyrir umfjöllun um málefni Haga og 1998. Í grein í Fréttablaðinu varpar hann fram þeirri spurningu hvort ástæða þess að Hagar auglýsa ekki í Morgunblaðinu.
Skattamálin fást ekki rædd fyrr en búið er að afgreiða Icesave
Næturfundur var á þingi og lauk fundi ekki fyrr en á öðrum tímanum í nótt. Felld var dagskrártillaga stjórnarandstöðunnar um að í dag yrðu tekin fyrir skattafrumvörp ríkisstjórnarinnar auk frumvarp til fjáraukalaga, áður en haldið væri áfram með umræður um Icesave.
Sjómannaafslátturinn afnuminn í áföngum
Fjármálaráðherra leggur til í nýju frumvarpi um tekjuöflun ríkisins að sjómannaafslátturinn verði látinn fjara út á fjórum árum frá og með tekjuárinu 2011. Hann lækki því um 25% af því sem hann er nú á hverju áranna 2011–2013.
Hagar veifa auglýsingavopni sínu gegn Morgunblaðinu
Smáfuglarnir hafa ekki rekist á neinn nema Jóhannes í Bónus, sem er hugsi yfir því, hvers vegna hann vill ekki auglýsa í Morgunblaðinu. Ástæðan er alkunn, því að auglýsingavopninu var veifað í Baugsmálinu.
Fréttablaðið í þjónustu stjórnarflokkanna
Smáfuglarnir veita því athygli, að Fréttablaðið leggur sig meira fram en áður um að gera hlut ríkisstjórnarsamstarfsins sem mestan og bestan, samhliða því sem deilt er á Sjálfstæðisflokkinn. Er þetta liður í að afla eigendum blaðsins stuðnings á æðstu stöðum í sama mund og leitað er leiða til að Bónusfeðgar, eigendur blaðsins, fái haldið yfirráðum í 1998/Högum.
Skrýtið fréttamat Morgunblaðsins vegna Össurar
Smáfuglarnir urðu undrandi þegar þeir sáu þessa forsíðufyrirsögn í Morgunblaðinu 27. nóvember: Össur sáttur við töf í Brussel.
Leggja saman einn og einn íslenskan ráðherra og fá út núll
Spánverjar taka við pólitískri forystu í Evrópusambandinu af Svíum á nýju ári. Þegar þeir leggja saman einn og einn íslenskan ráðherra í ESB málum frá þeir núll. Þetta er niðurstaða Björns Bjarnasonar.