amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 22. maí 2013 - 07:27
 

Fimmtudagurinn 26. nóvember 2009

«
25. nóvember

26. nóvember 2009
»
27. nóvember
Fréttir

Viðskiptajöfnuður enn neikvæður en batnar mikið

Halli var á viðskiptum við útlönd upp á 36 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi samkvæmt nýútkomnu bráðabirgðayfirliti Seðlabankans. Ríflega 37 milljarða króna afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum mátti sín lítils gagnvart miklum halla á jöfnuði þáttatekna að fjárhæð 72 milljarða króna.

„Þeir hrópa hæst sem eru með buxurnar á hælunum“

„Þeir hrópa hæst sem eru með buxurnar á hælunum, hafa farið á hausinn og jafnvel skipt oft um kenni­tölu og komast upp með það. Svo eru hinir sem standa sig og hafa ekki farið í gjaldþrot, þeir eru sökudólgarnir og eiga að vera að eyðileggja kerfið,“ segir Þórður Rafn Sigurðsson, formaður Útvegsbænda­félags Vestmannaeyja. Í viðtali við Fréttir lýsir hann óánægju með ákvörðun sjávar­útvegs­ráðherra að úthluta 2000 tonnum af skötusel utan kvóta.

„Fjármálin þín“ – nýr fjármálafræðsluvefur

Í dag opnar Íslandsbanki fjármálafræðsluvef fyrir almenning á vef bankans. Heiti vefsins er „Fjármálin þín“ og er markmið hans að vera upplýsinga­veita um fjármál þar sem almenningur getur leitað að upplýsingum sem snerta flest þau mál sem tengjast fjármálum einstaklinga. Vefurinn miðar að því að landsmenn skilji betur flókinn frumskóg fjármálanna og geti í kjölfarið tekið upplýstar ákvarðanir varðandi fjármál fjölskyldunnar og heimilisins.

Vefur um vogunar­sjóði opnaður

Vefurinn vogunarsjodir.net hefur nú verið opnaður. Vefurinn er gagnagrunnur sem heldur utan um vogunar­sjóði og ávöxtun þeirra, vefnum er ætlað að fræða fjárfesta um þá ávöxtunarmöguleika sem að geta legið í slíkum sjóðum.

Jólabruggið búið á Grænlandi

Hinn vinsæli Tuborg jólabjór, Tuborg Julebryg, hefur verið rifinn út í verslunum á Grænlandi. Það sem verra er að fleiri sendinga er ekki að vænta frá Danmörku fyrir jólin. Jólabjórinn er því að klárast hjá nágrönnum okkar í norðri – og enn ekki nema nóvember. Kannski er þetta tækifæri fyrir íslenskar ölgerðir, sem framleiða fyrirtaks jólabjór.

Heimilin eru ekki afgangsstærð – samstöðufundur á Austurvelli

„Vegna augljósrar tregðu stjórnvalda til að bregðast af alvöru við forsendubresti lánasamninga hafa Hagsmuna­samtök heimilanna boðað nýtt greiðsluverkfall frá 15.nóv.-10.des. Í tilefni af því halda samtökin ásamt Nýja Íslandi útifund á Austurvelli laugardaginn 28.nóv. kl. 15,“ segir í tilkynningu samtakanna.

Loftbrú beint frá Bandaríkjunum í nýju verslunina Kost

Aðsókn hjá matvöru­versluninni Kosti, hina nýju verslun Jóns Geralds Sullenberger, hefur farið langt fram úr áætlunum. Panta þurfti meira af vörum með flugi frá Bandaríkjunum. Von er á flugsendingu fyrir helgina með meira af vörum frá Bandaríkjunum en ákveðnar vörur þaðan hafa klárast.

Gjaldþrota Íslendingar leita skjóls hjá Evrópu­sambandinu, segir ESB-þingmaður

Íslendingar ákváðu að leita skjóls hjá Evrópu­sambandinu, eftir að þeir urðu gjaldþrota, sagði breskur þingmaður á Evrópu­sambandsþinginu í tveggja tíma umræðum um stækkun Evrópu­sambandsins (ESB) í Strassborg miðvikudaginn 25. nóvember.

Toll­stjóri með uppboð á lausafjármunum í Vöru­miðstöð Samskipa

Bílar, útilegubúnaður og veiðigræjur er meðal varnings sem boðinn verður upp af Toll­stjóranum í Reykjavík í hádeginu á laugardag, 28. nóvember 2009, í Vöru­miðstöð Samskipa við Kjalarvog. Um er að ræða ótollafgreiddar vörur þar sem aðflutningsgjöld eru fallin í gjalddaga og kennir þar margra grasa.

Aldrei hafa fleiri leitað til Fjölskylduhjálparinnar á einum degi

Fjögur hundruð og þrjátíu fjölskyldur fengu úthlutað mat og fatnaði hjá Fjölskylduhjálp Íslands í gær, á vikulegum úthlutunardegi. Aldrei hafa fleiri leitað til hennar á einum degi. Fjölskylduhjálpinni barst nýlega styrkur hollenskra góðgerðar­samtaka.

Lífeyris­sjóðir mikilvægir í uppbyggingu atvinnulífsins

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmda­stjóri SA, hélt í dag erindi um lífeyris­sjóðina og uppbyggingu atvinnulífsins hjá Farmanna- og fiskimanna­sambandi Íslands. Þar sagði Vilhjálmur m.a. að endurreisn hlutabréfa­markaðarins væri ein af lykilforsendunum fyrir endurreisn atvinnulífsins til framtíðar og að lífeyris­sjóðirnir gegni þar mikilvægu hlutverki.

Dýr skilnaður: Fyrrum frú Berlusconi vill 8 milljarða á ári

Hjónaskilnaður Sivio Berlusconi, forsætis­ráðherra Ítalíu, kann að reynast honum dýr. Veronica Lario, sem krefst skilnaðar frá bónda sínum í kjölfar kvennafars hans, fer fram á 43 milljóna evra framlag hans á ári, eða sem svarar tæplega 8 milljörðum króna. Forsætis­ráðherrann er borgunarmaður fyrir þokkalegu meðlagi, en auðævi hans eru talin nema nær 800 milljörðum króna.

Skuldatryggingaálag ríkja hefur hækkað í nóvember

Skuldatryggingaálag ríkisins hefur hækkað allnokkuð núna í nóvember. Var álagið til fimm ára 338 punktar í upphafi mánaðarins en stendur nú í 388 punktum. Almennt hefur skuldatryggingaálag ríkja Evrópu verið að hækka á þessum tíma og endurspeglar það aukna áhættufælni almennt.

Icelandair Group selur 20% hlut í tékkneska flug­félaginu Travel Service

Icelandair Group hf. gekk í gær frá sölu á um 20% hlut í tékkneska flug­félaginu Travel Service. Eftir viðskiptin á Icelandair Group um 30% hlut í Travel Service. Kaupandinn er Canaria Travel sem er eigu í sömu aðila og hafa verið með­eigendur Icelandair Group í Travel Service.

Verðbólga mælist 8,6%

Verðbólga síðustu 12 mánuði mælist 8,6% miðað við breytingar á vísitölu neysluverðs. Vísitalan hækkaði um 0,7% í nóvember samkvæmt útreikningum Hagstofunnar.

Afkoma Bakkavarar stórbatnar

Afkoma bakkavarar á þriðja ársfjórðungi barnar verulega á milli ára. Í tilkynningu til Kauphallar segir að EBITDA hagnaður hafi aukist um 45% á milli ára og numið alls níu milljörðum króna. Ágúst Guðmundsson for­stjóri segir uppgjörið sýna verulega bættan rekstrarárangur félagsins.

Ragnar stígur tímabundið til hliðar sem sparisjóðs­stjóri Byrs

Ragnar Z. Guðjónsson, sparisjóðs­stjóri BYS hefur óskað eftir því að stíga tímabundið til hliðar. Tilefnið er rannsókn sérstaks saksóknara á á lánveitingum Byrs til Exeter Holdings og tengdum viðskiptagjörningum.

Hver Íslendingur ver 42.000 krónum í jólainnkaupin

Í skýrslu Rannsóknaseturs verslunarinnar um jóla­verslunina kemur fram að áætlað sé að velta í smásölu­verslun sem rekja má til jólanna nemi um 13,4 milljörðum króna sem jafngildir því að hver Íslendingur verji að jafnaði næstum 42.000 kr til jólainnkaupa. Í fyrra var þessi upphæð 38.600 kr.

Hagar þurfa 23% hærra vöruverð til að standa undir skuldum

Til þess að Hagar geti staðið undir skuldsetningu fyrirtækisins og móður­félags þess, þarf vöruverð í verslunum að hækka um 23%. Þetta er niðurstaða í úttekt Ívars Páls Jónssonar blaðamanns Morgunblaðsins.

Toyota-umboðið komið í sölumeðferð

Skila­nefnd Landsbankans hefur ákveðið að setja hluta­bréf Toyota á Íslandi í sölumeðferð. Félagið er umboðsaðili fyrir Toyota og Lexus bíla. Þar með er ljóst að Magnús Kristinsson, útgerðarmaður í Vestmannaeyjum verður ekki lengur eigandi fyrirtækisins.

Skipta­stjóri krefst riftunar á viðskiptum Baugs með eigin bréf

Skipta­stjóri Baugs Group hefur krafist riftunar á kaupum Baugs á eigin bréfum í júlí á síðasta ári. Kaupin tengjast sölu Haga út úr Baugi til 1998 ehf. en Baugur notaði helming söluverðsins til að kaupa eigin bréf af helstu eigendum sínum.

Fjárveitingar til HÍ jafngilda því að Kennaraháskólinn sé þurrkaður út

Samkvæmt fjárlaga­frumvarpi fyrir 2010 á að reka Háskóla Íslands fyrir sömu fjárhæð og gert var áður en Kennaraháskóli Íslands var sameinaður skólanum. Með öðrum orðum Kennaraháskólinn er „þurrkaður“ út.

Fuglahvísl

Ríkið auglýsir TAX FREE vörur

Mikið er allt að verða öfugsnúið hér á landi. Stór hluti atvinnulífsins er komin í heldur ríkisins í gegnum hina endurreistu banka. Fyrirtæki hafa verið tekin af eigendum vegna skulda og eru rekin áfram í samkeppni á markaði.

Er Kastljós ekki raunveruleikaþáttur, þegar Jóhannes í Bónus mætir?

Smáfuglarnir lásu af athygli grein eftir Jón Trausti Sigurðarson, laganema í Háskóla Íslands og útgefanda tímaritsins Reykjavík Grapevine frá 2003, í Fréttablaðinu 26. nóvember. Jón Trausti velti fyrir sér spurningunni, hvenær maður setti fyrirtæki á hausinn og hvenær maður setti ekki fyrirtæki á hausinn.

Jón Ólafsson heldur áfram að tönglast á skattinum og manni úti í bæ

Sölva Tryggvasyni, sjónvarpsmanni þótti merkilegt að fá Jón Ólafsson athafnamann til að rifja upp fjögurra ára gömul slúðurummæli athafnamannsins. Ekkert nýtt í því og langt í frá tilefni til að blogga um það, líkt og Sölvi gerði á Pressuna, áður en þátturinn fór í loftið.

Jóhanna Sigurðar­dóttir: „Skattakrumla ríkisins finnur sér ýmsar leiðir...“

Að segja eitt í dag og annað á morgun, hefur því miður verið einkenni sumra stjórnmálamanna, íslenskra sem erlendra. En auðvitað er þeim heimilt að skipta um skoðun eins og öðrum. Jóhanna Sigurðar­dóttir forsætis­ráðherra hefur verið dugleg í þeim efnum.

ESB-aðildarsinnar og aukaatriðin

Smáfuglarnir vekja athygli á því, að ESB-aðildarsinnar ræða aldrei efni máls heldur alltaf einhver aukaatriði.

 
 
©2013 - - RSS - Um AMX